Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar 24. september 2026 22:30 Ég er nýkomin af málþingi heimspekistofnunar um nýja bók Vilhjálms Árnasonar; Samræðusiðfræði. Þar voru tvö stutt erindi um bókina og spurningar settar fram sem Vilhjálmur svo svaraði. Annað erindið vakti sérstaka athygli mína en það var eftir Ástríði Stefánsdóttur lækni og lífsiðfræðing. Hún fjallaði þar um nokkrar greinar í bókinni sem fjalla um hagnýta siðfræði og þá sérstaklega lífsiðfræði og að einhverju leyti mögulega sýn Kierkegaards á þau málefni. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki búin að lesa allar greinarnar í bók Vilhjálms en ég er vissulega byrjuð að lesa bókina enda vekur hún hjá mér áhuga bæði sem heimspekikennara og samfélagsaktívista sem hefur tekið þátt í pólitískri samræðu í samfélaginu síðustu 12 ár eða svo. Ástríður nefndi í erindi sínu að þótt það væri mikilvægt að fjalla um siðferðileg lögmál og kenningar eða almenn skilyrði fyrir ákvörðunum í lífsiðfræði væri annað jafnvel mikilvægara. Það er sú næmni og innsæi sem t.d. þarf að þjálfa hjá heilbrigðisstarfsfólki fyrir hverjum skjólstæðingi eða siðferðilegu álitamáli sem kæmi upp. Ástríður kennir læknanemum lífsiðfræði og spurði líka í lok erindisins hvernig maður kennir slíkt fag. Kennsla þar sem einn kennari heldur fyrirlestur með glærum fyrir kannski tugi eða jafnvel hundruði nemenda væri kannski ekki að ná að þjálfa þá næmni sem þyrfti til að fólk yrði fyllilega tilbúið til starfa í heilbrigðisstörfum. Hún nefndi að besta kennslan í þessu að hennar mati hefði verið þegar hún var með lítinn hóp nema sem hittust í nokkur skipti og gátu rætt af einhverri dýpt um einstaka mál. Kierkegaard fjallar um mikilvægi þess að setja sig í spor annarra og ef maður vill hjálpa öðrum með vandamál sín sé það mikilvægasta að hlusta á viðkomandi. Þessi virka hlustun, sem Vilhjálmur fjallar einmitt töluvert um í bók sinni, sem virðir fyrirbærafræðilega reynslu viðkomandi með öðrum orðum upplifun hans. Ekkert er verra fyrir fólk sem opnar sig með vandamál sín að fólk komi með óumbeðin ráð útfrá eigin reynslu, hugmyndum og skoðunum. Að byrja hjálpina með virkri hlustum og þeim stað sem viðkomandi er á hverju sinni er það sem Kierkagaard er að tala um. Þetta er það mikilvægasta í allri sálgæslu, bæði trúarlegri, tilvistarlegri og þeirri sem heilbrigðisstarfsfólk þarf að sinna. Ég man vel eftir þessum áherslum í mínu námi í guðfræði þar sem ég lærði töluverða sálgæslu í djáknanámi mínu. Ég hafði svo mikinn áhuga á sálgæslu að meðfram fullri kennslu eftir útskrift tók ég einnig þrjú námskeið hjá Endurmenntun HÍ í faginu. Mér fannst það eitthvað sem gæti gagnast í starfi mínu sem kennari þó svo að kennarar sinni vissulega ekki formlegri sálgæslu. En sálgæsla gagnast manni líka bara sem manneskju sem á í alls konar samskiptum og samræðum bæði persónulegum og faglegum. Ég fagna því innilega að nú sé hægt að klára formlega diplómu í sálgæslu hjá Endurmennt. Ég held að það sé gott fyrir samfélagið að fleiri læri sálgæslu. Ég fagna líka þessum áherslum í heimspekinni hjá Vilhjálmi og fleirum. Samræðusiðfræðin sem leggur áherslu á virka hlustun er líka eitthvað sem fleiri í samfélaginu mættu tileinka sér. Þetta sameinar alla vega áhuga minn og nám á sviði heimspeki, sálfræði, guðfræði, kennslufræði og lýðheilsu. Ég hlakka til að lesa meira í bók Vilhjálms ekki síst seinustu greinina hans um ferðalagið frá tilvistarheimspeki til siðfræðinnar og til tilvistarheimspekinnar aftur. Ég held að sálgæsla hljóti að vera hluti af þeirri vegferð. Höfundur er heimspekikennari og menntuð í sálgæslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun