Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 5. október 2026 21:30 Viðræðunefnd VR/LÍV fékk umboð til þess að segja upp kjarasamningum í kjölfar fundarins. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, fyrir miðju. Áróra/Vísir Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu.
Þetta er niðurstaða stjórnarfundar VR í kjölfar fundar með trúnaðarráði félagsins. Fyrr í kvöld veitti það stjórn VR, og jafnframt samninganefnd þess, óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum. Frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út síðdegis fimmtudaginn næstkomandi, 8. október. „Þetta var hörkufundur. Mikil mæting, málin rædd frá ólíkum hliðum, fólk skiptist á skoðunum en það var mjög afgerandi niðurstaða. Ég er með fullt umboð úr mínu félagi,“ segir Halla Gunnarsdóttir að loknum fundi. Hún segir að afgerandi niðurstaða hafi verið um að slíta kjarasamningum komi ekkert á móti. Allir í stjórn VR hafi greitt atkvæði með því að segja samningunum upp að öllu óbreyttu. Félagið sagði í yfirlýsingu fyrr í dag að Samtök atvinnulífsins hefðu ítrekað ekki sýnt viðleitni til þess að mæta stöðu launafólks vegna forsendubrests kjarasamninga. Hún segist vona að Samtök atvinnulífsins komi til móts við VR og að þau eigi fund á morgun. Innan VR sé full samstaða til þess að „rjúfa þennan vítahring“ og áhersla sé lögð á að láta samningana halda. „Ég held að það verði mikið óráð af Samtökum atvinnulífsins að láta þau springa í loft upp út af ekki stærra ágreiningsmáli en þessu.“ Er einhver von á að afstaða beggja aðila breytist á fundinum á morgun? „Já, ég bara vona það. Það sem auðvitað reynir á í svona sameiningarviðræðum er að leyfa sér að hugsa í lausnum og að opna á lausnir sem eru kannski ekki beint fyrir framan nefið á þér akkúrat þegar þú byrjar. Við erum tilbúin til að gera það.“ Nú eru þrír sólarhringar til stefnu þangað til frestur til að segja upp samningum rennur út. Halla segist sannfærð um að lausnin sé til en hins vegar sé alveg skýrt að ef það eigi að „þvinga okkur áfram inn í launalækkanir“ sjái félagið sér ekki fært annað en að segja samningunum upp.
Kjaramál Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira