Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Valur Páll Eiríksson skrifar 8. október 2026 14:29 Jóhann Berg Guðmundsson hefur legið undir feldi síðustu vikur og hafnað einhverjum tilboðum. Nú eru skórnir komnir á hilluna frægu. Getty/Alex Nicodim Jóhann Berg Guðmundsson hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna 36 ára gamall. Hann tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í dag.
Jóhann Berg á 18 ára atvinnumannaferil að baki þar sem hann lék lengst af á Englandi. Hann lék yfir 100 landsleiki fyrir Íslands hönd og fór með liðinu á bæði EM 2016 og HM 2018. Jóhann Berg hafði verið án liðs síðan í febrúar og óvissa verið um framtíð hans í sportinu síðustu mánuði. „Auðvitað er þetta búinn að vera langur fótboltaferill. Verð 36 ára í október og maður er orðinn eldgamall í þessu sporti. Þetta er búinn að vera frábær ferill en það er ekkert útilokað eins og er,“ sagði Jóhann í Bítinu á Bylgjunni í ágúst síðastliðnum. „Á þessum tímapunkti þarf þetta að vera nógu spennandi til að maður vilji þetta. Maður getur ekki verið 80 prósent í fótbolta. Ég þarf að vilja gera þetta almennilega. Eins og er hefur það ekki komið upp en við sjáum til hvað gerist,“ sagði Jóhann enn fremur fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan. Fótboltinn gefið allt Nú eru skórnir hins vegar komnir upp í hillu. „Eftir meira en 18 ára feril sem atvinnumaður er kominn tími á að ég leggi skóna á hilluna,“ skrifar Jóhann Berg í færslu á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Johann Berg Gudmundsson (@johannberggudmundsson) „Fótbolti hefur gefið mér allt,“ er á meðal þess sem segir einnig í færslunni. Jóhann Berg spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir Breiðablik hér á landi en hann hafði fyrir það verið í akademíum Chelsea og Fulham á Englandi. Hann hóf að leika með Breiðabliki sumarið 2008 og sló strax í gegn. Hann fór þaðan til AZ Alkmaar í Hollandi hvar hann var í fimm ár áður en leiðin lá til Lundúna á ný er hann samdi við Charlton Athletic. Lengst af var hann leikmaður Burnley milli 2016 og 2024 þar sem hann lék 200 deildarleiki. Hann lék í kjölfarið eitt ár í Sádi-Arabíu og annað í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Samningur hans í síðastanefnda ríkinu var slitið í febrúar og var Jóhann orðaður við lið hér heima. Eftir tæpa átta mánuði án liðs hefur hann hins vegar tekið þá ákvörðun að binda enda á leikmannaferilinn. Jóhann Berg spilaði 102 landsleiki fyrir Íslands og skoraði í þeim átta mörk, þar af fræg þrjú mörk í 4-4 jafntefli við Sviss í Bern árið 2013. Síðasti landsleikur Jóhanns Berg var við Mexíkó ytra snemma á þessu ári.
Landslið karla í fótbolta Enski boltinn Burnley FC Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira