Lífið

Píanó­leikari selur huggu­lega í­búð á Ás­valla­götu

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Gabríel Ólafsson hefur sett miðhæð á Ásvallagötu 26 á sölu.
Gabríel Ólafsson hefur sett miðhæð á Ásvallagötu 26 á sölu. Betri stofan

Píanóleikarinn og tónskáldið Gabríel Örn Ólafsson hefur sett á sölu 148 fermetra íbúð sína að Ásvallagötu 26. Um er að ræða sérhæð með kjallararými á besta stað í gamla vesturbænum og er ásett verð eignarinnar 149 milljónir.

Húsið var teiknað af Halldóri H. Jónssyni, byggt árið 1949 og hefur fengið gott viðhald að utan, var endursteinað og skartar koparrennum. Íbúðin er ein af þremur í húsinu, er með sérinngang, sérbílastæði á lóð og samanstendur af forstofu, alrými, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og kjallararými.

Íbúðin er á miðhæð hússins og er gengið upp tröppur inn í flísalagt anddyri og herbergjagang. Til hægri er gengið inn í forstofuherbergi og þaðan inn í parketlagt alrými með arni, stórum frönskum gluggum og góðri lofthæð. Samliggjandi því er borðstofa og eldhús með vönduðum innréttingum og tækjum.

Alrýmið er með háa lofthæð.Betri stofan

Frá ganginum er einnig gengið inn í rúmgott aðalsvefnherbergi með nýlegu teppi á gólfi og aukaherbergi sem er nýtt sem vinnuherbergi en getur nýst sem skrifstofa eða barnaherbergi. Baðherbergið er rúmgott, var áður baðherbergi og svefnherbergi, og var endurnýjað árið 2015. Gólfhiti er á gangi, baðherbergi og herbergjum. 

Í kjallara eru skráðir aukalega 26,6 fm sem skiptast í sérþvottahús, snyrtingu, geymslur og aukaherbergi. Rýmið í kjallaranum býður upp á ýmsa möguleika. Hægt er að lesa nánar um eignina á fasteignavef Vísis og skoða myndir hér að neðan:

Frá ganginum er gengið inn í svefnherbergin og forstofuna.Betri stofan

Aðalsvefnherbergið er ansi glæsilegt.Betri stofan

Vinnuherbergi sem getur nýst á ýmsan hátt.Betri stofan

Baðherbergið er með flísalagða veggi.Betri stofan

Í stofunni er arinn.Betri stofan

Stofan er með stórum gluggum.Betri stofan

Eldhús með fallegri innréttingu.Betri stofan

Húsið er á besta stað í gamla vesturbænum.Betri stofan





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.