Lífið

Óskar Hrafn og Lauf­ey selja á Nes­veginum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Íbúðin er sögð björt og falleg.
Íbúðin er sögð björt og falleg. Remax/Fasteignaljósmyndun

Hjónin Óskar Hrafn Þorvaldsson og Laufey Kristjánsdóttir hafa sett á sölu 115 fermetra íbúð sína að Nesvegi. Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum í fjórbýlishúsi með sérinngangi og tvennum svölum. Ásett verð er 108,5 milljónir.

Í fasteignaauglýsingu er hún sögð falleg og björt. Talsverð viðhaldsvinna var unnin utanhúss fyrir tveimur árum og hús og þak málað í framhaldi. Eldhúsið er á palli á efri hæðinni með sýn yfir stofuna, svo sá sem sér um eldamennskuna getur hæglega rætt við þá sem sitja niðri. 

Húsið var byggt 1988 og er hannað af Úti og inni ehf. Stutt er í skóla, leikskóla, matvöruverslanir og kaffihús. Þá er Vesturbæjarlaugin í næsta nágrenni og stutt í íþróttasvæði KR en Óskar er einmitt þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.