Lífið

Spurði um úr­sögn Jóns fyrir hálfu ári

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
671968606_10243188902078771_4994903514676290629_n

Svo virðist sem Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, hafi spáð réttilega fyrir um framtíðina í færslu á Facebook fyrir um sex mánuðum. Þar spurði Snorri hvort Jón Gnarr væri lengst uppi og spurði í kjölfarið hvort úrsögn úr Viðreisn væri á næsta leyti.

Snorri reyndist auðvitað að hluta til sannspár en í dag tilkynnti Jón Gnarr að hann segði sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann hefur þó ekki sagt sig úr Viðreisn og talar enn um sig sem Viðreisnarmann.

Færsla Snorra er frá 14. apríl og því nánast hálft ár liðið upp á dag síðan að hann spurði hvort það mætti eiga von á því að þingmaðurinn og grínistinn myndi segja sig úr Viðreisn. Færsluna má sjá hér fyrir neðan.

Þar spyr Snorri hvort að Jón Gnarr sé lengst uppi og vísar þar til tungutaks ungdómsins. Hugtakið „lengst uppi“ er gjarnan notað þegar vísað er til þess að einhverjum gangi vel eða líði vel. Snorri undirstrikar það með því að taka fram að Jón líti sérlega vel út. Hann nefnir sérstaklega að Jón hafi bæði grennst og eflst.

„Er með áráttu fyrir Völuspá og er nú farinn að peppa endalok vóksins í samfélagsmiðlafærslum. Hvað næst? Úrsögn úr Viðreisn? Eða ættum við kannski að byrja á að stofna bara hlaðvarp saman?“

Skrifar Snorri í færslu sinni en ekki liggur fyrir hvort alvara sé í orðum um sameiginlegt hlaðvarp.

Í athugasemd við færsluna bætir Snorri við að hann hafi óvænt rekist á Jón um leið og hann birti færsluna. Hann lét þá myndina sem er efst í fréttinni fylgja með.

„Var ekki fyrr búinn að ýta á enter að ég rakst á manninn á göngum þingsins þar sem hann stóð fyrir utan kústaskáp sem hann hefur í þrígang reynt að opna í von um að þar leynist líkamsræktarsalur þingmanna. Ég sem var einmitt á leið þangað vísaði þá Jóni veginn og sýndi honum salinn. Nú veit hann hvar hann er og hyggur á æfingu von bráðar. Þar geta viðræður okkar haldið áfram. Þið sjáið hvað er hægt með samstarfi og smá leiðsögn í rétta átt.“

Það verður fróðlegt að sjá hvort spádómur Snorra um sameiginlegt hlaðvarp verði einnig að veruleika. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.