Sport

„Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“

Ester Ósk Árnadóttir skrifar
Sigurður Heiðar Höskuldsson var ánægður með sína menn í dag. 
Sigurður Heiðar Höskuldsson var ánægður með sína menn í dag.  Guðmundur/Vísir

Tilfinningarnar eru mjög góðar. Mér fannst við sýna mjög gott hugarfar í seinni hálfleik, sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þór eftir mikilvægan 3-1 sigur á Stjörnunni á heimavelli í dag. 

Sigurinn þýðir að Þór er með örlögin í eigin höndum fyrir lokaumferðina þar sem nágrannar þeirra í KA töpuðu í dag. 

Sigurður var þó ekki mjög ánægður með fyrri hálfleik sinna manna, þó þeir hafi verið yfir 2-1. 

„Ég var ekki nógu ánægður með fyrri hálfleikinn, ég tók alveg smá blástur á þá í hálfleik. Mér fannst við linnir í þessum fáum varnar mómentum sem við þurftum að díla við. Leikmenn þurftu að átta sig á því að við þurftum að mæta alvöru klárir í seinni hálfleikinn því að vindurinn hér var bara þess eðlis að það þurfti alvöru kraft frá okkur, hver og einn einasti var stórkostlegur í seinni.“

Þorri Ingólfsson skoraði mikilvæga þriðja markið á 58. mínútu þegar Þór komst í skyndisókn. 

„Þetta var frábærlega gert, Þorri skorar þarna geggjað mark. Við erum búnir að vera að treysta svolítið á þessa ungu drengi í þessu stóru leikjum. Þeir skora þarna þrír af fjórum sem eru 17-18 ára gamlir í dag. Þvílíkt hjarta í þeim, þeir voru svo góðir í þessum leik. Maður er bara ótrúlega stoltur.“

Þór er nú í öruggu sæti þegar aðeins ein umferð er eftir og eru í bílstjórasætinu. Þeir eiga leik gegn FH á útivelli næstu helgi. 

„Við þurfum dálítið að díla við það að vera í öruggu sæti, eiga góða viku og mæta klárir næstu helgi. Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í, að vera ekki í fallsæti fyrir síðustu umferðina. Við þurfum að mæta klárir í lokaleikinn. Við byrjuðum leikinn illa í dag og ég held við lærum mjög mikið af því, ég held það sé bara fínt að við höfum byrjað leikinn illa. Ég held að allt verði upp á 10 í næsta leik.“

Sigurður hefur mikla trú á liðinu sínu fyrir lokaleikinn og er ánægður með hópinn. 

 „Við erum með frábæra reynslu í eldri mönnum og mér finnst rosalega góð blanda í hópnum. Mér finnst allur hópurinn mjög klár. Ég trúi ekki öðru en að næsta helgi verði góð helgi. Leikmenn hafa sýnt það í síðustu tveimur leikjum að þeir vilja og þrá að vera áfram í þessari deild og eru sannarlega nægjanlega góðir í það. Þannig ég er bara mjög spenntur strax fyrir næstu helgi og ég vona að leikmenn séu það líka. Ég vona að við náum að halda spennustiginu svipað og var í þessari viku því það var mjög gott og þá erum við í góðum málum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×