Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar 22. október 2026 10:03 Við tölum gjarnan um mikilvægi þess að fólk sem hefur orðið fyrir ofbeldi eða öðrum áföllum leiti sér hjálpar, vinni úr reynslu sinni og taki ábyrgð á eigin bata. En hversu oft spyrjum við hvað samfélagið og samferðafólk getur gert til að stuðla að þeim bata? Hvers vegna erum við svona upptekin af því hvort þolendur hafi unnið nægilega mikið í sjálfum sér, en spyrjum síður hvort fólkið í kringum þá hafi unnið í eigin viðhorfum, fordómum og hegðun? Þegar ábyrgðin færist yfir á þau sem verða fyrir skaða Það er orðið býsna algeng orðræða að við eigum að vinna úr áföllum sem við höfum orðið fyrir, læra að setja mörk, styrkja sjálfsmyndina og takast á við afleiðingar erfiðrar reynslu. Allt eru þetta mikilvæg verkefni og oft nauðsynleg. En stundum læðist inn í þetta sú hugmynd að fólk þurfi að vera búið að vinna úr áföllum sínum áður en það sé tilbúið í ný sambönd. Að það þurfi fyrst að verða heilt, heilbrigt og tilfinningalega stöðugt til að teljast æskilegur maki. Eins og tjónaðir bílar. Hvað þýðir það eiginlega að vera búinn að vinna í sér? Hvenær er þeirri vinnu lokið? Og hver ákveður hvort einstaklingur hafi náð nægilegum árangri? Þetta eru ekki saklausar spurningar þegar við höfum í huga til dæmis hversu margar konur hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi eða annars konar kynbundnu ofbeldi. Þær hafa orðið fyrir skaða af völdum annarra. Samt er hætta á að þær sitji uppi með þá kröfu að „fara í viðgerð“ áður en þær teljast aftur verðugar ástar og náinna tengsla. Ábyrgðinni snúið á hvolf. Áföll eru ekki aðeins minningar Rannsóknir síðustu áratuga hafa aukið skilning okkar á því hvernig áföll geta haft áhrif á líkamann, streituviðbrögð, tilfinningastjórnun og getu fólks til að upplifa öryggi. Geðlæknirinn Bessel van der Kolk hefur fjallað ítarlega um þetta í bókinni The Body Keeps the Score. Þar lýsir hann hvernig afleiðingar áfalla geta birst í líkamlegum viðbrögðum og viðvarandi árvekni, jafnvel þegar hættan er liðin hjá. Peter Levine, sem hefur þróað líkamsmiðaðar aðferðir við áfallavinnu, hefur sömuleiðis lagt áherslu á samspil taugakerfis, líkamsviðbragða og upplifunar öryggis. Þolandi getur því vitað með skynsemi framheilans að hann sé ekki lengur í hættu en samt brugðist við ákveðnum aðstæðum eins og hættan sé enn til staðar. Þetta getur haft áhrif á náin sambönd, traust og getu til að slaka á í samskiptum við aðra. Það þýðir ekki að viðkomandi sé gallaður, óhæfur til sambands eða ófær um að elska. Það þýðir að reynslan hefur skilið eftir sig spor. Og þessi spor hverfa ekki endilega við það eitt að einhver segi okkur að halda áfram með lífið. Við gróum í tengslum við annað fólk Breski geðlæknirinn John Bowlby lagði grunninn að tengslakenningunni og sýndi fram á mikilvægi öruggra tengsla fyrir tilfinningalegan þroska. Hugmynd hans um örugga höfn og öruggan grunn hefur haft mikil áhrif á skilning okkar á mannlegum samskiptum. Geðlæknirinn Judith Herman, einn af brautryðjendum áfallafræðinnar, hefur lýst því hvernig áföll geta svipt fólk tilfinningu fyrir öryggi, valdi yfir eigin lífi og tengslum við aðra. Í skrifum hennar er endurheimt sjálfræðis og öruggra tengsla mikilvægur hluti bataferlisins. Bruce Perry, geðlæknir og sérfræðingur í þroska heilans, hefur einnig lagt ríka áherslu á að örugg og styðjandi mannleg tengsl séu grundvallaratriði í bata eftir áföll. Irvin Yalom hefur í skrifum sínum um sálfræðimeðferð fjallað um mikilvægi mannlegra tengsla, nærveru og þess að einstaklingur upplifi að hann sé raunverulega séður og heyrður. Sameiginlegur þráður í þessum kenningum er að við erum félagsverur. Öryggi verður ekki eingöngu til innra með okkur. Það mótast líka í samskiptum við annað fólk. Við þurfum fólk sem hlustar án þess að dæma. Fólk sem reynir að skilja án þess að krefjast þess að við útskýrum allt. Fólk sem getur verið hjá okkur í vanlíðan án þess að gera kröfu um að við náum okkur á ný sem fyrst. Þegar nánustu tengsl verða hluti af vandanum Eitt það sárasta sem margir þolendur upplifa er þegar fólkið sem þau treystu best bregst þeim. Það getur verið maki, foreldri, systkini, vinur eða annar náinn aðstandandi. Viðbrögðin geta verið vantrú, þögn, ásakanir, lítilsvirðing eða krafa um að hætta að ræða það sem gerðist. Stundum eru þau sett fram sem vel meint ráð. „Þú verður að hætta að hugsa um þetta.“ „Þú getur ekki látið fortíðina stjórna lífi þínu.“ „Þú þarft bara að fyrirgefa.“ „Ertu ekki enn búin að vinna úr þessu?“ Fyrir þau sem eru að reyna að ná fótfestu eftir áfall geta slík skilaboð aukið einmanaleika og skömm. Þau geta líka orðið til þess að einstaklingur hættir að leita til fólks sem áður skipaði stóran sess í lífi hans. Utan frá getur það litið út eins og félagsleg einangrun. En stundum er fjarlægðin meðvituð ákvörðun um að vernda eigin líðan. Það er nefnilega munur á því að einangrast vegna ótta og því að setja mörk gagnvart samskiptum sem valda áframhaldandi vanlíðan. Hvorugt er einfalt og hvort tveggja getur verið sársaukafullt. En það er ekki sjálfgefið að blóðtengsl eða löng vinátta veiti einstaklingi öryggi. Og það er ekki sjálfgefið að sá sem hefur orðið fyrir áfalli eigi að halda öllum gömlum tengslum til streitu. Stundum finnst mesti stuðningurinn hjá fólki sem kom síðar inn í lífið. Og það er mjög algengt. Hver hefur efni á að vinna í sér? Það er líka önnur hlið á umræðunni sem mér finnst alltof sjaldan fá athygli. Sálfræðimeðferð kostar mikið. Sérhæfð áfallameðferð getur tekið langan tíma og ekki hafa öll aðgang að henni þegar þörfin er mest. Á fólk að bíða með að mynda náin tengsl þar til það hefur efni á að „vinna í sér“? Við megum ekki gera bata að forréttindum þeirra sem hafa fjárhagslegt bolmagn til að kaupa sér hjálp. Sálfræðimeðferð getur verið ómetanleg. En hún er ekki eina uppspretta stuðnings og hún er ekki skilyrði þess að fólk sé verðugt kærleika, virðingar og öryggis. Ástin er ekki útskriftarpróf Auðvitað berum við öll ábyrgð á eigin hegðun í samskiptum. Áföll veita engum rétt til að beita aðra ofbeldi, stjórna þeim eða ganga yfir mörk þeirra. Og nýr maki á ekki að þurfa að gegna hlutverki meðferðaraðila. En það er stór munur á því að taka ábyrgð á eigin hegðun og því að þurfa að sanna að maður sé búinn að jafna sig áður en maður telst hæfur til að vera elskaður. Fólk getur verið að vinna úr áföllum og samt verið góður maki, góður vinur og góð manneskja. Það getur átt erfitt með traust en samt verið traustsins vert. Það getur þurft meiri tíma, þolinmæði og skilning án þess að vera byrði. Og það getur verið sterkt þótt það sé enn að jafna sig. Við ættum kannski að hætta að spyrja hvort þolendur séu orðnir nógu heilir fyrir ný sambönd og byrja að spyrja hvort við sjálf séum tilbúin að byggja upp sambönd sem einkennast af öryggi, gagnkvæmri virðingu og ábyrgð. Verið skjólið sem eykur hraða bata. Samfélag sem vill vinna gegn kynbundnu ofbeldi þarf ekki aðeins að beina sjónum að gerendum og ofbeldismenningu. Það þarf líka að skoða hvernig komið er fram við þá sem hafa orðið fyrir ofbeldinu. Þolendur þurfa ekki að vera fullkomlega grónir til að eiga rétt á góðum tengslum. Þau þurfa ekki að leggja fram sönnun fyrir því að þau hafi unnið nægilega mikið í sjálfum sér. Og þau þurfa ekki að halda í sambönd sem grafa undan öryggi þeirra, eingöngu vegna þess að þau hafa staðið lengi eða byggjast á skyldleika. Við gróum eða blómstrum einfaldlega ekki í hvaða félagsskap eða umhverfi sem er. Ekki lengur. Stundum hefst batinn einmitt þegar við finnum fólk sem gerir okkur kleift að vera eins og við erum, án þess að þurfa stöðugt að verja reynslu okkar, útskýra sársaukann eða sanna að við séum verðug náinna tengsla. Höfundur er fjölmiðlakona og áhugamanneskja um samskipti og tengsl. Heimildir: 1) Judith Lewis Herman (1998). „Recovery from Psychological Trauma.“ Psychiatry and Clinical Neurosciences. 2) John Bowlby (1988). A Secure Base: Parent-Child Attachment and Healthy Human Development. Bessel van der Kolk (2014). The Body Keeps the Score: Brain, Mind, and Body in the Healing of Trauma. . 3) Bruce D. Perry og Oprah Winfrey (2021). What Happened to You? Conversations on Trauma, Resilience, and Healing. 4) Irvin D. Yalom (2002). The Gift of Therapy. 5) Gabor Maté og Daniel Maté (2022). The Myth of Normal: Trauma, Illness & Healing in a Toxic Culture. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar