Skoðun

Keisarinn er ekki í fötum!

Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar

Það er mikil spenna í skólasamfélaginu þessa dagana vegna fyrirhugaðra breytinga á námsmati í grunnskólum landsins. Skilaboð ráðherra eru skýr: Strax! Skilaboð fagfólksins eru sömuleiðis skýr: Vandaðri vinnubrögð og meiri ígrundun svo vel til takist.

Fagfólkið krefst faglegra raka og vill fara skynsamlega leið að lokamarkmiðinu sem má áætla að ráðherra telji sig stefna að sem er að samræma námsmat milli skóla svo að A sé A og 10 sé 10 óháð því í hvaða skóla barn gengur eða hvað kennari þess heitir.

En sé ráðherra alvara með að ná fram raunverulegum úrbótum þarf hún að sýna virka hlustun. Það að samræma námsmat krefst sértækra aðgerða, pólitísks vilja og skýrrar forgangsröðunar. Ekki flausturs.

Þangað til stendur ráðherra allsber á sviðinu. Ólíkt ævintýrinu þar sem enginn þorði að segja neitt við allsnakinn keisarann, hrópa þorpsbúar nú af öllum lífs og sálar kröftum til varnar því að ráðherra haldi sneisusför sinni áfram. En þá vandast málið: Keisarinn heyrir ekki!

Höfundur er deildarstjóri í grunnskóla.




Skoðun

Sjá meira


×