Formúla 1

Sætir gagn­rýni fyrir um­mæli helgarinnar

Valur Páll Eiríksson skrifar
Clarkson skaut á hinn argentínska Colapinto um helgina.
Clarkson skaut á hinn argentínska Colapinto um helgina. Getty/England

Jeremy Clarkson hefur verið gagnrýndur fyrir að gefa í skyn að Franco Colapinto, ökumaður Alpine, hafi átt skilið refsingu á ráslínu vegna þess að hann er Argentínumaður.

Hinn 23 ára gamli ökumaður frá Buenos Aires mun færðist aftur um tíu sæti á ráslínu vegna vélarskipta fyrir Formúlu 1-keppni gærdagsins sem fram fór í Texas.

Clarkson, 66 ára, var á þjónustusvæðinu í Austin sem gestur Alpine og lét ummælin falla í viðtali við Sky Sports.

Í samtali við Martin Brundle um horfur liðsins í Texas sagði Clarkson: „Franco fékk refsingu á ráslínu fyrir að vera Argentínumaður ... Ja, líklega. Ég myndi gefa honum eina slíka fyrir það.

„En hvað um það, það er út af því sem gerðist þegar við fórum þangað.“

Síðustu ummælin virðast vísa til atviks árið 2014, þegar Clarkson og Top Gear-teymið neyddust til að hætta tökum í Patagóníu vegna reiðra mótmælenda eftir að þeir óku um á bíl með númeraplötu sem virtist vísa til Falklandseyjastríðsins.

BBC og Clarkson héldu því fram að númeraplatan H982 FKL hefði verið tilviljun.

Alpine brást við með yfirlýsingu: „Okkur er kunnugt um ummæli sem gestur liðsins í Austin lét falla í nýlegu sjónvarpsviðtali. Við viljum ítreka að þetta eru persónulegar skoðanir sem samræmast ekki gildum liðsins um að stuðla að góðvild og virðingu.

„Franco er okkar ökumaður og nýtur fulls stuðnings okkar.“

Spenna jókst í kringum HM í sumar

Atvikið á sér stað í skugga viðvarandi spennu milli Bretlands og Argentínu vegna Falklandseyja.

Falklandseyjar eru breskt yfirráðasvæði í nánd við Argentínu og kusu eyjaskeggjar með yfirgnæfandi meirihluta árið 2013 að svo yrði áfram.

Í apríl 1982 réðust argentínskar hersveitir inn á eyjarnar en neyddust til að gefast upp í júní sama ár.

Argentínska knattspyrnusambandið (AFA) var sektað um 321.000 dali vegna borða sem sýndur var í lok undanúrslitaleiks HM gegn Englandi í sumar, en á honum stóð „Las Malvinas son Argentinas“, sem þýðir „Falklandseyjar eru argentínskar“.

Ummæli Clarksons vöktu hörð viðbrögð á netinu, meðal annars frá Jamie Campbell-Walter, öðrum umboðsmanna Colapintos.

„Ummæli Jeremys Clarksons um þjóðerni Francos voru algjörlega óásættanleg. Ummæli sem þessi eiga ekki heima í Formúlu 1, óháð því hver lætur þau falla eða hvort þau eru sögð í gríni,“ skrifaði hann á X.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×