Innlent

Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu. Myndin er úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar, lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir sinntu aðgerðum við Ölfusá vegna gruns um að maður hafi fallið í ána. Eftirgrennslan leiddi í ljós að maðurinn hefði ekki fallið í ána. 

Þorsteinn Matthías Kristinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að lögreglu hafi borist ábending frá vegfaranda á svæðinu um að maður hafi fallið í Ölfusá. Maðurinn fannst í aðgerðunum og hafði raunar aldrei farið í ána. Svæðið sem um ræði sé nærri Ölfusárbrúnni á Selfossi.

„Þannig þetta leystist frekar fljótt,“ segir Þorsteinn. 

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir að þyrla Gæslunnar hafi verið kölluð til að beiðni Lögreglunnar á Suðurlandi. Þeim hafi borist beiðnin um tuttugu mínútum fyrir klukkan fimm.


Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×