Enn og aftur dæmdur í fangelsi Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. október 2026 13:29 Jafar Panahi hlaut Gullpálmann á Cannes árið 2025 fyrir kvikmyndina It Was Just an Accident. EPA Íranski leikstjórinn Jafar Panahi, sem hlaut Gullpálmann á Cannes í fyrra, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Íran og var jafnframt settur í tveggja ára samfélagsmiðla- og ferðabann. Ekki liggur fyrir hvað Panahi vann sér til sakar en hann hefur áður verið dæmdur fyrir að taka þátt í „áróðursaðgerðum“ gegn írönskum yfirvöldum. Árið 2010 hlaut leikstjórinn sex ára fangelsisdóm og var settur í tuttugu ára kvikmyndagerðarbann.
Íranski fjölmiðillinn Emtedad News Agency greinir frá dómnum sem er fimm ára og eins mánaðar langur en Panahi átti þegar yfir höfði sér eins árs fangelsisvist. Mostafa Nili, lögfræðingur Panahi, greindi fjölmiðlinum frá því að leikstjórinn hefði hvorki verið viðstaddur né meðvitaður um ákæruna þegar dómurinn féll í íranska byltingardómstólnum. Nili sagði að bankareikningar Panahi hefðu fyrirvaralaust verið frystir í síðustu viku og þeir hefðu í kjölfarið farið saman á skrifstofu saksóknara í Tehran sem greindi þeim frá dómnum. Auk fangelsisvistarinnar og tveggja ára samfélagsmiðla- og ferðabanns úrskurðaði dómstóllinn að eigur hans yrðu gerðar upptækar. Fangelsaður og settur í kvikmyndagerðarbann Panahi hefur ítrekað komist í kast við írönsk yfirvöld og dómstóla. Leikstjórinn fjallaði um stöðu íranskra kvenna í The Circle (2000), þriðju kvikmynd sinni, en síðan þá hafa kvikmyndir hans ýmist verið ritskoðaðar eða bannaðar í landinu. Árið 2010 var Panahi dæmdur í sex ára fangelsi fyrir áróður gegn íslamska lýðveldinu og settu írönsk yfirvöld á hann tuttugu ára kvikmyndagerðarbann. Panahi sat inni í þrjá mánuði áður en honum var sleppt gegn greiðslu tryggingar. Þrátt fyrir að mega ekki stunda kvikmyndagerð hefur Panahi síðan þá leikstýrt sex kvikmyndum, þar á meðal This Is Not a Film (2011), Taxi (2015) og 3 Faces (2018). Leikstjórinn var aftur fangelsaður árið 2022 en var sleppt úr haldi eftir að hafa farið í hungurverkfall. Kvikmyndagerðarbanni Panahi var aflétt árið 2023 og fékk hann leyfi yfirvalda til að ferðast til Cannes með kvikmyndina It Was Just an Accident (2025) sem hlaut Gullpálmann á hátíðinni. Þrátt fyrir það var Panahi dæmdur í eins árs fangelsi af írönskum dómstólum í desember síðastliðnum fyrir að taka þátt í áróðri gegn íranska ríkinu. Hann ákvað þrátt fyrir það að snúa aftur til landsins í apríl. „Ég er þannig manneskja að ég verð að vera í landinu mínu,“ sagði Panahi við Variety um dóminn. „Ég þarf að anda þar og vinna þar. Ef þau vilja halda þessum dómi til streitu geta þau gert það. Ekkert mun fá mig til að skipta um skoðun um að fara þangað aftur.“
Íran Bíó og sjónvarp Kvikmyndahátíðin í Cannes Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Sjá meira