Íran

Íran

Höfuðborg: Teheran. Mannfjöldi: 89,6 milljónir (2025). Flatarmál: 1.648.195 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Fram­lengir vopna­hléið og herkvína

Donald Trump segist ekki ætla að skipa hernum að hefja á nýjan leik árásir á Íran þegar vopnahlé milli Bandaríkjamanna og Ísraela annars vegar og Írana hins vegar rennur sitt skeið á morgun. Hann segir að herkvínni gagnvart Íran verði þó haldið áfram.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Við­ræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar

Ráðamenn í Íran hafa ekki enn ákveðið hvort þeir muni senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Tveggja vikna vopnahlé í átökum Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran fellur úr gildi á morgun og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagst tilbúinn til að hefja árásir á Íran að nýju.

Erlent
Fréttamynd

Friðurinn úti á morgun en ekkert á­kveðið um við­ræður

Ráðamenn í Íran virðast ekki enn hafa tekið ákvörðun um það hvort þeir senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Undirbúningur viðræðna er sagður standa yfir í Islamabad en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sem mun sækja viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda þar í landi, ku ekki vera lagður af stað.

Erlent
Fréttamynd

Hormússundi lokað á ný

Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar.

Erlent
Fréttamynd

Bretar og Frakkar ætla að leiða að­gerðir við Hor­mússund

Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu.

Erlent
Fréttamynd

Brot­hætt vopna­hlé í Líbanon hefur tekið gildi

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn á að samningar náist milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael á næstu dögum en í gær tilkynnti hann um tíu daga vopnahlé á svæðinu sem gekk í gildi í gærkvöldi. 

Erlent
Fréttamynd

Íranir geti valið auð­veldu leiðina eða þá erfiðu

Bandaríkin munu halda uppi herkví við Hormússund eins lengi og þörf krefur að sögn Pete Hegseth varnarmálaráðherra landsins. Hann segir Bandaríkin nú undirbúa sig undir möguleikann á frekari átökum, Íranir hafi val um að ljúka átökum með því að velja auðveldu leiðina ellegar verði þeim gert að fara erfiðu leiðina. Hann hótaði árásum á orkuinnviði landsins.

Erlent
Fréttamynd

Við­ræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu.

Erlent
Fréttamynd

Hezbollah mót­mælir við­ræðum og Íranir krefjast skaða­bóta

Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael.

Erlent
Fréttamynd

Öllum írönskum skipum út­rýmt nálgist þau her­kví

Boðuð herkví Bandaríkjaforseta á ströndum Írans tók gildi nú síðdegis og samkvæmt forsetanum hafa skip þegar fengið að sigla um Hormússund. Hann hótar því að öllum írönskum skipum sem nálgist skip bandaríska sjóhersins verði útrýmt.

Erlent
Fréttamynd

Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump

Leó fjórtándi páfi segist ekki óttast ríkisstjórn Donalds Trump eftir að bandaríski forsetinn hellti úr skálum reiði sinnar yfir hann á samfélagsmiði í nótt. Hann ætli að halda áfram að tala máli friðar.

Erlent
Fréttamynd

Olíu­verð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps

Alþjóðlegt olíuverð hefur hækkað um 7 prósent frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist myndu láta loka fyrir umferð um Hormússund við Persaflóa. Blátt bann á að taka gildi klukkan 15 á morgun, mánudag, en óskýrt er hvort skipum sem tengjast ekki Íran verði hleypt í gegn þar sem misræmis gætir í málflutningi Trump og hersins í þeim efnum.

Erlent
Fréttamynd

Friðar­við­ræður runnu út í sandinn

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur yfirgefið Islamabad, höfuðborg Pakistan, eftir að friðarviðræðum við Íran lauk án samkomulags. Hann sagðist hafa lagt fram „besta og endanlegasta tilboð“ sem hann væri fær um fyrir hönd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Aug­liti til aug­litis í fyrsta sinn frá ís­lömsku byltingunni

J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna fer fyrir samninganefnd sem fundar nú með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettum embættismönnum í Islamabad í Pakistan. Um er að ræða fyrsta fund bandarískra og íranskra stjórnvalda augliti til auglitis frá íslömsku byltingunni 1979.

Erlent
Fréttamynd

Hótaði Rutte hefndarað­gerðum í reiði­lestri í Hvíta húsinu

Fundur Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í vikunni er sagður hafa einkennst af fúkyrðaflaumi forsetans. Hann á að hafa hótað NATO-ríkjum hefndaraðgerðum vegna þess að þau hafa ekki viljað taka þátt í aðgerðum Bandaríkjamanna í Íran.

Erlent