Menning

Ragn­heiður Harpa hlaut Bók­mennta­verðlaun Tómasar Guðmunds­sonar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Hildur Björnsdóttir við verðlaunaafhendingu Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar.
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Hildur Björnsdóttir við verðlaunaafhendingu Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar. Vísir/Anton Brink

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár fyrir handritið að ljóðabókinni Deig, sem kemur út í dag. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða fyrr í dag.

Verðlaunin hafa verið veitt af Reykjavíkurborg frá árinu 1994 til minningar um skáldið Tómas Guðmundsson en frá árinu 2004 hafa þau verið veitt fyrir óútgefið handrit að ljóðabók. 

Ragnheiður Harpa með ljóðabókina Deig.

Alls bárust 78 handrit í samkeppnina í ár en Ragnheiður Harpa varð hlutskörpust og fær verðlaunafé sem nemur einni milljón króna.

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er rithöfundur og sviðslistakona sem hefur starfað á fjölbreyttum vettvangi lista og bókmennta. Fyrsta ljóðabók hennar, Sítrónur og náttmyrkur, kom út árið 2019 og sú næsta, Urðarflétta, árið 2022. Hún hefur jafnframt samið verk fyrir leikhús og útvarp, unnið að fjölbreyttum sviðslistaverkefnum og skrifað barnabókina Eyju og sólarsteininn.

Ragnheiður Harpa er ein sex skálda í höfundahópnum Svikaskáldum, sem hafa meðal annars sent frá sér ljóðabækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd, Ég er fagnaðarsöngur og Nú sker ég netin mín. Skáldsaga hópsins, Olía, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2021. 

Svikaskáldin Ragnheiður Harpa, Fríða, Þóra, Melkorka og Sunna Dís.Saga Sigurðardóttir

Í ljóðabókinni Deig beinir Ragnheiður Harpa sjónum sínum að hráefni mannlegrar tilveru, hversdeginum og þeim töfrastundum sem leynast í hinu hversdagslega. Fortíð og framtíð mætast í ljóðmyndum þar sem minningar flæða upp úr skúffum, framtíðin birtist á silfurmynd og leitað er að griðastöðum, jafnt innan veggja heimilisins sem utan þess. Deig kemur út í dag hjá Mál og menningu.

„Ljóðin í Deig eru í senn fallegir, djúpir og kjarnyrtir textar sem fjalla á yfirborðinu um hversdagsleika fjölskyldulífsins en vísa einnig til stærri sammannlegri veruleika þar sem dauði, draumar og hið dularfulla ráða ríkjum. Rauði þráðurinn í gegnum verkið eru fjölskyldubönd og þá sérstaklega móðurhlutverkið sem deigið í titli bókarinnar verður að eins konar myndlíkingu fyrir. Í Deig er lesandanum ekki aðeins boðið upp í ljóðrænt ferðalag, heldur einnig skynrænt, þar sem blóðappelsínur, hvítlaukur og kóríander verða að hráefnum í margra rétta, bragðmikilli veislu lífsins,“ sagði um Deig í umsögn dómnefndar.

Í dómnefnd Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar árið 2026 sátu Þorvaldur S. Helgason, formaður, Friðgeir Einarsson og Gyða Sigfinnsdóttir.

Sólin skein skært við Höfða í dag.Vísir/Anton Brink

Tengdar fréttir

Þórdís Dröfn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Þórdís Dröfn Andrésdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2025 fyrir ljóðahandritið Síðasta sumar lífsins. Upphæð verðlaunafjár nemur einni milljón króna og kemur bókin út hjá bókaútgáfunni Benedikt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.