Viðskipti innlent

Er­lent fé­lag kaupir Sam­skip

Árni Sæberg skrifar
Skip Samskipa.
Skip Samskipa. Vísir/Anton Brink

Erlent skipafélag hefur fest kaup á flutningsfyrirtækinu Samskipum og dótturfélögum þess. Þetta herma heimildir fréttastofu. Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir voru langsamlega stærstu eigendur skipafélagsins rótgróna.

Samkvæmt heimildum Vísis var starfsmönnum Samskipta tilkynnt um kaupin á starfsmannafundi eftir hádegi í dag. Spænska skipafélagið Boluda Corporación Marítima er sagt vera kaupandinn en Vísir hefur ekki fengið það staðfest.

Samskip voru stofnuð árið 1990 en byggðu á grunni skipadeildar Sambands íslenskra Samvinnufélaga. Síðan þá hefur skipafélagið vaxið gríðarlega og er eitt af leiðandi flutningafyrirtækjum Evrópu en höfuðstöðvar þess eru í Rotterdam í Hollandi.

Ólafur Ólafsson var stærsti eigandi Samskipa ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Kristjánsdóttur.Vísir/Vilhelm

Greint var frá því janúar síðastliðnum að Ólafur Orri Ólafsson hefði verið ráðinn nýr forstjóri samstæðu Samskipa en hann er sonur eigendanna fyrrverandi Ólafs og Ingibjargar.

Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa á Íslandi, hefur ekki svarað erindum fréttastofu. Þá óskaði Ágústa Hrund Steinarsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Samskipa, eftir skriflegri fyrirspurn þegar Vísir náði af henni tali upp úr klukkan þrjú. Fyrirspurninni hefur ekki verið svarað þegar þetta er skrifað.

Fréttin er í vinnslu.




Tengdar fréttir

Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa

Ólafur Orri Ólafsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri samstæðu Samskipa og tekur við keflinu af Kari-Pekka Laaksonen, sem gengt hefur starfinu frá árinu 2019. Ólafur Orri er sonur hjónanna Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur, sem eru langstærstu eigendur Samskipa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×