Handbolti

Elín Klara öflug í stór­sigri Sävehof

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir er í algjöru lykilhlutverki hjá einu besta liði Svíþjóðar.
Elín Klara Þorkelsdóttir er í algjöru lykilhlutverki hjá einu besta liði Svíþjóðar. vísir / bjarni

Íslenska landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir átti fínan leik í kvöld þegar lið hennar vann stórsigur í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Elín Klara og félagar í Sävehof unnu tólf marka heimasigur á Hallby HK, 36-24, eftir að hafa verið 21-9 yfir í hálfleik.

Elín var með sex mörk úr sjö skotum í fyrri hálfleiknum á meðan mótstaðan var einhver. Hún endaði leikinn með sjö mörk og tvær stoðsendingar enda fengu allar að spila í þeim seinni.

Sävehof hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum deildarleikjum sínum og hoppaði upp í annað sætið með þessum sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×