Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Tómas Arnar Þorláksson skrifar 31. október 2026 07:02 Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra vísir/Anton brink Lögreglustjóri Norðurlands eystra segir of lítið gert þegar lögreglumenn eru beittir ofbeldi eða hótunum. Hlutfall þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi í sínu starfi sé of hátt en dæmi eru um að lögreglumenn séu eltir heim og lífi og heilsu þeirra ógnað utan vinnu.
Ný löggæsluáætlun dómsmálaráðherra fyrir næstu fimm ár var kynnt á sérstökum fundi á miðvikudaginn. Þar kemur fram að samkvæmt könnun meðal lögreglumanna hafa 58 prósent starfsmanna lögreglunnar verið beittir ofbeldi eða orðið fyrir hótunum síðastliðið ár. Lögreglumenn eltir heim til sín Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri Norðurlands eystra, kynnti niðurstöðu könnunarinnar og markmið um að lækka hlutfallið verulega næstu ár. Hún segir um mjög alvarlega stöðu að ræða og segir mikilvægt að lögreglumenn upplifi sig örugga í vinnunni. „Þetta er um helmingur lögreglumanna sem hefur upplifað þetta. Við þurfum líka að huga að því að það eru ekki allir sem eru í vettvangsvinnu. Stór hluti lögreglunnar vinnur ekki á vettvangi og þess vegna er þetta alveg gríðarlega hátt hlutfall að mínu mati,“ segir hún og undirstrikar að umrædd atvik eigi sér alls ekki öll stað við hefðbundin störf lögreglunnar. „Það eru mörg dæmi um þetta, það er setið fyrir þeim og þeir eru eltir heim og þeir fá hótanir utan vinnutíma jafnt og í einhverjum ákveðnum verkefnum. Það eru dæmi um allt þetta, því miður.“ Of lítið gert í ofbeldi gagnvart lögreglumönnum Hún nefnir dæmi þar sem lögreglumaður var hætt kominn þegar sakborningur elti hann með hníf. Þar mátti minnstu muna að lífi lögreglumannsins hafi verið stefnt í hættu en honum tókst að afvopna árásarmanninn. Einnig hefur verið ráðist á lögreglumann inni í fangaklefa. Lögreglumaðurinn hafi farið að vitja fangans þar sem honum var mikið niður fyrir og virtist þurfa á einhvers konar aðstoð að halda. Lögreglumaðurinn kraup hjá manninum og áður en hann vissi af gaf maðurinn honum bylmingshögg sem skildi eftir sig alvarlega áverka. „Tilfinningin hjá lögreglunni er að það er ekki farið í rannsókn. Það eru kannski ekki teknar skýrslur. Þegar fólk er handtekið, er í fangaklefa eða er komið í járn, og sparkar í höfuðið á lögreglumanni sem situr í framsæti, eins og dæmi eru um, þá þykir það ekki vera eins alvarlegt brot því þetta fólk er undir þvingun. Mögulega þarf að skoða það, hvort matið sé ekki á réttum stað.“ Páley bendir á það í máli sínu að ákæruhlutfall ofbeldisbrota gegn lögreglumönnum sé alltof lágt. Gjarnan er ekki viðhafst frekar í málum jafnvel þótt myndbandsupptaka sé til af atvikinu og fjöldi vitna á vettvangi. „Við þurfum að skoða það hvort þetta sé eitthvað kerfislægt hjá okkur. Af hverju gengur ekki betur að saksækja menn fyrir þessi brot? Það á að hafa afleiðingar að beita ofbeldi gegn lögreglumanni. Lögreglan upplifir að svo sé alls ekki. Það er alvarlegt því þetta er oft ítrekað hjá sama fólkinu. Það eru ítrekaðar hótanir og ítrekuð brot. Það er erfitt að mæta því að vera lögreglumaður og mæta alltaf sama fólkinu aftur og aftur sem er stöðugt búið að fá mál sín niðurfelld því þetta þykir ekki vera brot.“ Finna fyrir viðveru skipulagðra glæpasamtaka Mesta aukningin hafi orðið í hótunum gagnvart lögreglumönnum. Páley segir erfitt að segja til um hvað valdi því. „Við höfum verið að upplifa versnandi löggæsluumhverfi í heildina. Á síðustu árum hefur þetta orðið harðnandi heimur. Það er alls konar sem spilar inn í, það eru aukin ofbeldisbrot, mikil neysla, það er mikill geðrænn vandi. Það er alls konar sem tengist þessu. Sannarlega er það ekki að hjálpa okkur að það sé ekki hart tekið á því. Við verðum að gera betur þarna,“ segir hún og ítrekar mikilvægi þess að slíkar gjörðir hafi afleiðingar. Fjöldi skipulagðra glæpasamtaka hefur tvöfaldast á rúmum tíu árum. Árið 2015 voru þau tíu talsins en eru nú tuttugu samtals. Páley segir lögregluna taka eftir auknum umsvifum á Norðurlandi og annars staðar á landsbyggðinni. „Við erum að sjá alls konar brot. Alls konar skipulögð brotastarfsemi sem er falin í löglegri starfsemi. Hún er af öllum stærðum og gerðum. Við erum með ákveðið hlutfall af þeim miðað við landsmeðaltal. Brotin spyrja ekki um landamæri eða umdæmamörk. Þetta er að sama skapi hjá okkur og alls staðar annars staðar á Íslandi.“
Lögreglan Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira