Viðskipti innlent

Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir í­þrótta­starf­semi

Smári Jökull Jónsson skrifar
25 milljónir króna fóru til íþróttafélaga á Suðurnesjum.
25 milljónir króna fóru til íþróttafélaga á Suðurnesjum. Eysteinn Eyjólfsson

Hagnaður samstæðu Kaupfélags Suðurnesja (KSK) fyrstu sjö mánuði ársins nam 633 milljónum króna. Bókfært fé nemur níu milljörðum króna en nýlega tilkynnti Reykjanesbær um kaup félagsins á fasteign þar sem hjúkrunarheimili er starfrækt.

Þetta kom fram á haustfundi fulltrúaráðs félagsins og er greint frá í fréttatilkynningu.

Þar voru afhentir styrkir sem Kaupfélagið veitir í ár til íþróttastarfs á Suðurnesjum. 25 milljónir króna runnu til íþróttafélags Keflavíkur og ungmennafélaga á svæðinu svo sem Njarðvíkur og Grindavíkur.

Fyrir skömmu tilkynntu KSK eignir að þau hefðu fest kaup á fasteigninni við Njarðarvelli 2 af Reykjanesbæ. Þar er hjúkrunarheimilið Nesvellir starfrækt og eru þar sextíu hjúkrunarrými. 

„Við erum afar ánægð með kaupin á Nesvöllum. Þau falla mjög vel að þeirri stefnu okkar að beina fjárfestingum KSK eigna í auknum mæli að okkar heimasvæði. KSK á sterkar rætur á Suðurnesjum og okkur finnst mikilvægt að geta fjárfest hér heima og þannig lagt okkar af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins,“ var haft eftir Brynjari Steinarssyni, framkvæmdastjóra KSK, í tilkynningunni.

Kaupfélag Suðurnesja var stofnað árið 1945 en töluverð breyting hefur verið á starfseminni á síðustu árum eftir að dótturfélagið Samkaup sameinaðist inn í Dranga. KSK eignir, sem er dótturfélag Kaupfélagsins, seldi 25 fasteignir víðs vegar um landið á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×