Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Agnar Már Másson skrifar 3. nóvember 2026 18:40 „Borealis á verulegar kröfur á hendur þeirra félaga sem standa að baki málshöfðuninni [...] og eru þær kröfur talsvert hærri en þær kröfur sem Adomat & Heidenblut M 1 ehf. telur sig kunna að eiga á hendur Borealis, séu þær einhverjar.“ Egill Aðalsteinsson Lögfræðingur Borealis Data Centers, sem rekur gagnaver á Blönduósi, segir ásakanir Adomat & Heidenblut M 1 á hendur Borealis ekki eiga við rök að styðjast. Adomat hafi reynt að valda félaginu tjóni með ásökunum sem birtust í fréttatilkynningu fyrr í dag.
Borealis og Adomat & Heidenblut deila nú fyrir dómstólum um leigusamning. Adomat & Heidenblut M 1 ehf. sagðist í fréttatilkynningu í dag hafa stefnt Borealis Data Center vegna meintra vanefnda á leiguskuld sem hljóðaði upp á um 900 milljónir króna. Málsmeðferð hófst í dag. Málið var sagt varða leigusamning frá júní 2022, þar sem Adomat leigði Borealis tæplega tvö þúsund sérhæfðar tölvur til notkunar í gagnaveri félagsins á Blönduósi. Samkvæmt kröfu Adomat hætti Borealis að greiða mánaðarlega leigu undir lok árs 2022 og hefur síðan hvorki greitt leiguna né afhent búnaðinn til baka, að því er fram kemur í tilkynningunni. Í yfirlýsingu Bergþóru Halldórsdóttur, yfirlögfræðings Borealis Data Center, til fréttastofu segir aftur á móti að málið varði fyrrverandi viðskiptavin Borealis, Adomat & Heidenblut M 1 ehf. og önnur tengd félög erlendis sem hafi hætt að greiða fyrir þjónustu sem þeim var veitt. „Borealis á verulegar kröfur á hendur þeim félögum sem standa að baki málshöfðuninni vegna ógreiddrar þjónustu og eru þær kröfur talsvert hærri en þær kröfur sem Adomat & Heidenblut M 1 ehf. telur sig kunna að eiga á hendur Borealis, séu þær einhverjar.“ Búnaðurinn sé í vörslu Borealis vegna ógreiddra skulda viðskiptavinarins og það sé í samræmi við skilmála í samningum milli aðila. „Við teljum þær ásakanir sem koma fram í fréttatilkynningu félagsins Adomat & Heidenblut M 1 ehf. ekki eiga við rök að styðjast og tilgangur hennar sé að reyna að valda félaginu áframhaldandi tjóni,“ skrifaði lögmaðurinn. Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. „Niðurstaða málsins mun ekki hafa áhrif á rekstur Borealis eða áform þess um áframhaldandi uppbyggingu,“ segir í yfirlýsingu frá lögfræðingi Borealis. Greint var frá því í Lögbirtingablaðinu í október að bæði Skatturinn og KPMG Law hefðu gert kröfur um að bú Adomat & Heidenblut M1 yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotamálið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 9. desember. Félagið var afskráð í fyrra.
Gagnaver Dómstólar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira