Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Eiður Þór Árnason skrifar 4. nóvember 2026 06:20 Keisha Lance Bottoms var áður borgarstjóri Atlanta. Ap/Brynn Anderson Keisha Lance Bottoms verður fyrsta svarta konan til að gegna ríkisstjóraembætti í Bandaríkjunum eftir nýafstaðnar kosningar í Georgíu. Hún verður um leið fyrsti Demókratinn til að sitja í ríkisstjórabústað þessa mikilvæga barátturíkis í yfir 25 ár.
Fleiri nöfn voru skráð á spjöld sögunnar eftir að atkvæði voru talin víða um Bandaríkin. Má þar meðal annars nefna fyrsta opinberlega samkynhneigða manninn í öldungadeildinni og fyrstu konuna af frumbyggjaættum til að verða ríkisstjóri. Hin 56 ára Bottoms er fyrrverandi borgarstjóri Atlanta, höfuðborgar Georgíu, ríkis sem mótast hefur af arfleifð þrælahalds, aðskilnaðarstefnu og baráttu fyrir borgaralegum réttindum. Greint er frá þessu í frétt AP-fréttaveitunnar en hún sigraði Rick Jackson, milljarðamæring og viðskiptamann sem var fulltrúi Repúblikanaflokksins í ríkinu. Fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn í öldungadeild Á sama tíma í New Mexico varð Deb Haaland fyrsta konan af frumbyggjaættum til að verða kjörin ríkisstjóri í Bandaríkjunum og Byron Donalds verður fyrsti þeldökki ríkisstjóri Flórídaríkis fyrir Repúblikana. Demókratinn Chris Pappas sigraði John E. Sununu í New Hampshire og verður fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn í öldungadeild Bandaríkjaþings. Þar með hélt Pappas sætinu í höndum Demókrata en ríkið hefur ekki sent Repúblikana á þingið frá árinu 2010. Chris Pappas á kosninganótt í New Hampshire.Ap/Reba Saldanha Eftir kosningar í gær verður Peggy Flanagan sömuleiðis fyrsta konan af frumbyggjaættum til að taka sæti í öldungadeildinni en hún sigraði Repúblikanann Michele Tafoya sem starfaði sem íþróttafréttamaður. Þá gæti Demókratinn Mary Peltola orðið fyrsti öldungadeildarþingmaðurinn kominn af frumbyggjum Alaska ef hún heldur naumu forskoti sínu á Dan Sullivan. Metfjöldi kvenna og fyrsti þeldökki forseti deildarinnar Einnig eru allra augu á Michigan þar sem Abdul El-Sayed gæti orðið fyrsti músliminn til að taka sæti í öldungadeild þingsins. Hann er með rúmlega fimm prósentustiga forskot á höfuðandstæðing sinn Mike Rogers þegar 75 prósent atkvæða hafa verið talin. Sjálfur hefur hann lýst yfir sigri en AP-fréttaveitan hefur ekki viljað ganga svo langt. Abdul El-Sayed hefur vakið mikla athygli í Michigan. ap/Julia Demaree Nikhinson Gert er ráð fyrir að Hakeem Jeffries taki við sem leiðtogi meirihlutans í fulltrúadeildinni eftir kosningarnar og verður hann um leið fyrsti þeldökki forseti deildarinnar. AP-fréttaveitan hefur staðfest sigur hundrað þingkvenna í fulltrúadeildinni. Þingflokkur kvenna í Demókrataflokknum segir þetta metfjölda kvenna í neðri deild þingsins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þingkosningar í Bandaríkjunum Bandaríkin Tengdar fréttir Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Demókrataflokkurinn er talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast. 4. nóvember 2026 04:48 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira
Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Demókrataflokkurinn er talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast. 4. nóvember 2026 04:48