Landamæri NATO við Rússland tvöfaldast
Finnar gengu í dag formlega í NATO og urðu þar með þrítugasta og fyrsta aðildarríki bandalagsins. Finnski fáninn var dreginn að húni við hátíðlega athöfn við höfuðstöðvar NATO í Brussel í morgun og hér í Reykjavík var fána NATO jafnframt flaggað við finnska sendiráðið við Túngötu.