Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann
„Ég get nú ekki talað fyrir alla en ég sá fyrir mér að ég gæti náttúrulega ekki haldið áfram að vera að gera þetta til þess að vera fullur,“ segir Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi, í síðasta þætti af Tónlistarmönnunum okkar á Sýn+. Þar fóru meðlimir sveitarinnar yfir það hversu mikið rugl var í raun og veru á þeim á sínum tíma.