Ófriðarástand breiðist víðar út

Íranski herinn hefur frá því í nótt skotið fjölda eldflauga að borgarlegum skotmörkum í nágrannaríkjum til að hefna fyrir árásir Bandaríkjanna og Ísrael frá því á laugardag. Sprengjum hefur áfram rignt yfir Íran í dag og ljóst að ófriðurinn er að breiðast víðar um Mið-Austurlönd. Íranski hálfmáninn, leiðandi mannúðarsamtök í Íran, segja að á sjötta hundrað íranskra ríkisborgara hafa látist í árásum Bandaríkjanna og Ísraels síðustu sólarhringa. Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna réttlætti árásir Bandaríkjanna með því að vísa til ítrekaðra árása á Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra síðustu áratugi.

4
01:24

Vinsælt í flokknum Fréttir