Forsætisnefnd staðfesti niðurstöðu siðanefndar um brot Bergþórs og Gunnars Braga
Forsætisnefnd Alþingis staðfesti nú síðdegis þá niðurstöðu siðanefndar þingsins að Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson hafi brotið siðareglur fyrir alþingismenn með ummælum sínum á barnum Klaustri í nóvember í fyrra. Hvorugur þeirra hyggst segja af sér þingmennsku. Bergþór segir að hann verði dæmdur af kjósendum en ekki pólitískt skipaðri siðanefnd.