Starfsmaður á skammtímaheimili fyrir fatlaða til rannsóknar hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar
Karlmaður, sem starfar á skammatímaheimili fyrir fötluð börn, ungmenni og ungt fólk hjá Reykjavíkurborg, er nú til rannsóknar hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaður um brot gegn ungri konu sem dvaldi á heimilinu. Málið er litið alvarlegum augum að sögn framkvæmdastjóra hjá Reykjavíkurborg og var maðurinn sendur í leyfi á meðan málið er til rannsóknar.