Helgin: Stórstjarna frá Austur Evrópu nýtur Þjóðhátíðar
Micka Frurry sem af mörgum hefur verið kallaður Björgvin Halldórsson austur Evrópu er staddur á Þjóðhátíð Eyjum þar sem hann skemmtir sér með fjölmennu liði vina og öryggisvarða. Micka var í viðtali í Verslunarmannahelgarútvarpi Bylgjunnar og hafði þýtt fallegt þjóðhátíðarlag yfir á nýlendu þýsku sem hann flutti með aðstoð Partýstjórans og Jarls Sigurgeirssonar gítarleikara.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    