Þrír menn brjótast inn í Húrra Reykjavík
Aðfaranótt 11. febrúar, rétt fyrir klukkan fimm, brutust þrír menn inn í verslun Húrra Reykjavík við Hverfisgötu. Á myndböndum af innbrotinu má þrjá svartklædda menn inni í versluninni eftir að hafa brotið rúðuna í útidyrahurð verslunarinnar.