Körfuboltakvöld: Stjörnumenn líta mjög vel út
Sérfræðingarnir í Bónus Körfuboltakvöldi eru skiljanlega afar hrifnir af Stjörnuliðinu sem keyrir yfir flesta mótherja sína þessa dagana í Bónusdeild karla í körfubolta. 38 stiga stórsigur á Stólunum í síðustu umferð sýndi öðrum liðum hversu svakalega öflugir Garðbæingar eru orðnir.