

Bónus-deild karla
Leikirnir

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Grindavík 79-92 | Grindavík tók þriðja sætið
Grindvíkingar tryggðu sér þriðja sæti Dominos-deildarinnar með sigri í Ljónagryfjunni.

Úrslit kvöldsins í Dominos-deild karla | Pavel sjóðheitur
Þrír leikir fóru fram í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld. KR og Grindavík unnu auðvelda sigra en framlengja þurfti á Ísafirði þar sem ÍR var í heimsókn.

Hversu lengi þarf Einar að bíða?
Þrír leikir fara fram í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld og þar á meðal er stórleikur Njarðvíkur og Grindavíkur í Ljónagryfjunni. Þetta er fyrsti leikur bikarmeistara Grindavíkur eftir sigurinn í Höllinni um síðustu helgi og með sigri gulltryggja þeir sig í hóp þriggja efstu liðanna.

Keflavík tapaði og Valur féll
Það voru heldur betur tíðindi í leikjum kvöldsins í Dominos-deild karla í körfubolta. Keflavík tapaði gegn Haukum og getur þar af leiðandi nánast kvatt deildarmeistaratitilinn.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Snæfell 93-88 | Mikilvægur sigur Stjörnumanna
Stjörnumenn enduðu fimm leikja taphrinu með fimm stiga sigri á Snæfelli, 93-88, í mjög spennandi leik liðanna í 19. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í Ásgarði í Garðabæ í kvöld.

Dómaranefnd kærir Magnús Þór
Dómaranefnd KKÍ hefur ákveðið að senda inn kæru til aganefndar sambandsins vegna atviks sem átti sér stað í leik KR og Keflavíkur á mánudagskvöldið.

Magnús biður Brynjar afsökunar á olnbogaskotinu
Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður Keflavíkur, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atviks sem átti sér stað í leik KR og Keflavíkur í Dominos-deild karla í gær.

KR-ingar kæra ekki | Dómaranefndin óákveðin
KR mun ekki leggja fram kæru vegna atviks sem átti sér stað í leik liðsins gegn Keflavík í gær.

Æsilegar lokasekúndur í DHL-höllinni | Myndband
KR vann eins stigs sigur á Keflavík í uppgjöri toppliðanna í Domino's-deild karla í gærkvöldi eftir ótrúlegar lokasekúndur.

Brynjar Þór fékk högg í andlitið frá Magnúsi | Myndband
"Þetta var algjör óþarfi. Ég þekki Magga vel og þetta er bara svekkjandi,“ sagði Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR, um atvik sem átti sér stað í leik liðsins gegn Keflavík í gær.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Keflavík 90-89 | Brynjar Þór hetja KR-inga
KR vann Keflavík í æsispennandi toppslag í Dominos-deild karla. Brynjar Þór Björnsson skoraði sigurkörfuna fyrir heimamenn.

KR-ingar sterkari en Keflvíkingar í þremur stöðum
KR og Keflavík spila óopinberan úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld.

Bikarhátíð í Höllinni
Samkvæmt sérfræðingum Fréttablaðsins er enginn vafi á því hvaða lið eru sigurstranglegri í bikúrslitaleikjunum í ár.

Tvö geta fengið bikarmeistaratitil í afmælisgjöf í dag?
Tveir leikmenn í bikarúrslitaleikjum dagsins í körfuboltanum halda upp á afmælið sitt í dag en þá fara fram úrslitaleikirnir í Poweradebikar karla og kvenna. Snæfell mætir Haukum í bikarúrslitaleik kvenna en hjá körlunum spila Grindavík og ÍR um bikarinn.

Komast Sverrir og Ingi í góðan hóp?
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eiga báðir möguleika á því að komast í fámennan hóp geri þeir lið sín að bikarmeisturum í dag.

Þrír Grindvíkingar hafa verið með í öllum þremur töpunum
Grindavíkurliðið hefur tapað þremur bikarúrslitaleikjum í Laugardalshöllinni á undanförnum fjórum árum og þrír leikmenn liðsins í dag hafa verið með í öllum þessum tapleikjum. Grindavík mætir ÍR í úrslitaleik Poweradebikars karla í körfubolta klukkan 16.00 í dag.

Sveinbjörn: Ætlum heim í Breiðholtið með bikarinn
"Við vorum ekki flottir fyrir áramót,“ sagði Sveinbjörn Claessen, fyrirliði ÍR sem mætir Grindavík í úrslitum bikarkeppni karla í dag.

Guðrún hefur unnið bikarinn í öll fjögur skipti sín í Höllinni
Guðrún Ósk Ámundadóttir, fyrirliði kvennaliðs Hauka, á möguleika á því að verða bikarmeistari í fimmta sinn í dag þegar Haukar mæta Snæfelli í úrslitaleik Powerade-bikars kvenna í körfubolta.

Fyrsti leikurinn á milli eitt og tvö í sjö ár
Bikarúrslitalið Snæfells og Hauka eru í tveimur efstu sætum Dominos-deildar kvenna og það hefur aðeins gert einu sinni á síðustu þrettán árum að tvö efstu liðin í deildinni mætist í bikarúrslitaleiknum.

Þorleifur: Vinnum ef við spilum okkar leik
Þorleifur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, þekkir það vel að spila til úrslita um bikarmeistaratitil karla.

Annað tap Njarðvíkur í röð
Haukar unnu góðan heimasigur á Njarðvík í kvöld og komust þar með upp í fimmta sæti Domino's-deildar karla.

Þór stakk af í seinni hálfleik
Þór frá Þorlákshöfn gerði góða ferð til Borgarness í kvöld og vann átján stiga sigur á Skallagrími, 101-83.

Naumur sigur Snæfellinga gegn botnliðinu
Valur komst nálægt því að vinna afar óvæntan sigur á Snæfelli í fyrri leik kvöldsins í Domino's-deild karla í körfubolta.

Kristinn dæmir sinn þrettánda bikarúrslitaleik
Dómaranefnd KKÍ hefur raðað niður dómurum á úrslitleikina í Powerade-bikar karla og kvenna í körfubolta sem fara fram í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Hjá konunum mætast Snæfell og Haukar en hjá körlunum spila Grindavík og ÍR um bikarinn.

Búnir að bæta sig í sjö leikum í röð með Nigel Moore
ÍR-ingar settu enn meiri spennu í baráttuna um síðustu sætin inn í úrslitakeppni Dominos-deildar karla í körfubolta þegar þeir unnu sjö stiga sigur á Stjörnunni í gær, 106-99.

Bárður ætlar ekki að þjálfa Stólana næsta vetur
Bárður Eyþórsson, þjálfari 1. deildarliðs Tindastóls, er á förum frá félaginu í sumar þrátt fyrir að hann sé á góðri leið að skila liðinu upp í Domnios-deild karla í körfubolta.

Umfjöllun: ÍR - Stjarnan 106-99 | ÍR með skotsýningu á lokasprettinum
ÍR-ingar unnu frábæran sigur á Stjörnumönnum í Dominos deild karla í kvöld, 106 - 99. Breiðhyltingar hafa nú unnið sex af síðustu sjö leikjum og eru komnir á bólakaf í baráttuna um sæti í úrslitakeppninni í vor.

Þakklátur fyrir að menn hugsi til mín
Friðrik Ingi Rúnarsson, sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri KKÍ í lok janúar, er opinn fyrir því að byrja að þjálfa aftur. Hann þjálfaði síðast Grindavík árið 2006 og gerði liðið að bikarmeisturum. Það var erfitt að þurfa að yfirgefa körfuboltasamband

Skoraði 60 stig úr þriggja stiga skotum
Magnús Þór Gunnarsson er ein mesta skytta í sögu íslensks körfubolta og það sannaði hann rækilega í dag.

Tómas kveikti í Þórsliðinu í þriðja - úrslitin í körfunni í kvöld
Þórsarar unnu Valsmenn 91-84 í Dominos-deild karla í körfubolta í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákhöfn þrátt fyrir að lenda fjórtán stigum undir í fyrri hálfleiknum og leika bæði án fyrirliðans Baldurs Ragnarssonar og Bandaríkjamannsins Mike Cook.