Fastir pennar

Fastir pennar

Fréttamynd

Uppgjörið

Síðustu kosningar snerust hvorki um pólitíska hugmyndafræði né framtíðina. Segja má að í fáum kosningum hafi málefni og stefnuyfirlýsingar einstakra stjórnmálaflokka borið jafn lítið á góma. Kosningarnar voru fyrst og fremst uppgjör við hrunið. Þær deildu völdum á ný með skírskotun til liðins tíma.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hreppur eða borg

Þrátt fyrir hina miklu bílaeign þjóðarinnar eru bílar almennt ekki sérlega vel liðinn hlutur. Flestum er raunar afar illa við alla aðra bíla en þeirra eiginn. Hinir bílarnir eru of margir, keyra og hratt, leggja ólöglega, virða ekki stöðvunarskyldur og gefa ekki stefnuljós. Annarra manna bílar eru einhver versti gestur og nágranni sem menn geta óskað sér. Ef „íbúar í nágrenninu“ fengju einhverju ráðið yrðu allar götur annað hvort botnlangar eða einsstefnugötur, eða jafnvel hvort tveggja. Sem væri raunar dálítið fyndið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hagræði fyrir alla

Eitt af því sem góðærið leiddi af sér var að afgreiðslutími verslana hér á landi var lengdur. Afgreiðslutími á virkum dögum var lengdur, fimmtudagskvöldin bættust við, lengri afgreiðslutími á laugardögum, sunnudögum, um helgar, lengri afgreiðslutími fyrir jólin og opið allan sólarhringinn. Kaupmenn kepptust hver um annan þveran að lengja afgreiðslutímann og oft var eins og lengri afgreiðslutími væri eina svarið við aukinni samkeppni. Nú situr íslensk verslun uppi með einn lengsta afgreiðslutíma sem þekkist í nágrannalöndunum, ef ekki þann lengsta.

Fastir pennar
Fréttamynd

Framtíðarsýn

Mig dreymdi að væri komið árið 2012, þeir tunglið höfðu malbikað og steypt í hólf og gólf. Já veröldin var skrýtin, það var allt orðið breytt, því vélar unnu störfin og enginn gerði neitt,“ söng Vilhjálmur Vilhjálmsson árið 1969 á plötunni Hún hring minn ber.

Bakþankar
Fréttamynd

Músík og mannasiðir

Vinur minn einn hefur farið svo víða og gert svo margt, að hann á að heita má ekkert eftir. Honum finnst tvennt skara fram úr öllu öðru, sem hann hefur tekið sér fyrir hendur: að tína sveppi og renna sér á skautum. Þegar hann gifti sig, bauð hann konunni með sér að tína sveppi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Réttlæti þeirra ríku og voldugu

Embættismaður liggur undir grun um að hafa nýtt sér trúnaðarupplýsingar til að bjarga eigin skinni með sölu á hlutabréfum í banka. Hann er viðfangsefni í opinberri umræðu og sætir nú öðru sinni opinberri rannsókn grunaður um innherjaviðskipti. Hann situr sem fastast og þverneitar að láta af störfum þótt almenn réttlætiskennd boði að honum verði vikið tímabundið úr starfi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Milliliðalaust

Ríkisstjórnin bað í gær þegna landsins um að beina reiði sinni ekki að persónum og heimilum. Rétt væri að skilja þar á milli og þrátt fyrir að réttur fólks til mótmæla væri vissulega viðurkenndur, sé mikilvægt að þau mótmæli séu skipulögð, friðsamleg og rúmist innan allsherjarreglu samfélagsins.

Bakþankar
Fréttamynd

Stieg vinur minn

Fyrir nokkrum mánuðum rændi Svíi hjarta mínu. Já, þetta gerðist þrátt fyrir að ég sé vel að mér um Íslendingasögur og viti að Svíar eru undantekningarlaust vondir menn, göldróttir og jafnvel berserkir. Ég var stödd úti í bókabúð, ákveðin í að kaupa mér skemmtilegt léttmeti og komin með kilju í hönd. Í biðröðinni hitti ég fyrir annan viðskiptavin. Honum þótti augljóslega lítið til bókarinnar í höndum mér koma en ýtti að mér annarri bók. Bókin hét Karlar sem hata konur og hafði ég verið þess fullviss að þar væri á ferð femínískt fræðirit en ég var ekki á höttunum eftir slíku riti þennan eftirmiðdag. En af því að þessi maður í bókabúðinni var nú sjálfur Egill Helgason, sem margir telja nestor íslenskrar bókmenntaumræðu, og af því að röðin var komin að mér við kassann gerðist ég meðvirk mjög og skipti umhugsunarlaust um skruddu. Þegar út var komið sá ég samstundis eftir skiptunum og var skapi næst að bíða eftir því að Egill og önnur gáfumenni sem höfðu hreiðrað um sig inni í búðinni færu burt svo ég gæti skilað henni.

Bakþankar
Fréttamynd

Lagt inn í hugmyndabankann

Fáar þjóðir hafa fengið annað eins tækifæri upp í hendurnar og það sem Íslendingar hafa nú. Kreppan er ekki bara vond. Hún felur í sér möguleika á að hugsa upp á nýtt og bæta samfélagið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Virkisborgin Ísland

Frá árinu 1996 og til ársloka 2008 sóttu rúmlega 650 einstaklingar um hæli á Íslandi. Þar af dró rúmlega fjórðungur umsóknir sínar til baka eða hvarf af landi brott. Íslensk stjórnvöld hafa því einungis þurft að afgreiða um fjörutíu umsóknir um hæli á ári að meðaltali undanfarin tólf ár - vissulega nokkru fleiri á síðustu árum. Þrátt fyrir það virðast þau veigra sér við það verk því að einungis tæpur helmingur þessara umsækjenda fékk efnislega meðferð á málefnalegum forsendum. Hinir voru sendir úr landi á grundvelli svo kallaðrar „Dyflinnarreglu" sem ætlað er að koma í veg fyrir að einn einstaklingur geti átt umsóknir í mörgum ríkjum samtímis.

Fastir pennar
Fréttamynd

Uss!

Fyrsta grein óskráðra reglna íslenskra stjórnmála, stjórnsýslu og viðskipta er að yfir málum skuli hvíla leynd nema annað sé sérstaklega ákveðið. Af þessari óskráðu reglu eru stjórnmálin, stjórnsýslan og viðskiptin gegnsýrð.

Fastir pennar
Fréttamynd

Til öryggis

Fyrir bara tveimur örstuttum árum vorum við á hátindi oflætisins og okkur allir vegir færir. Rjómi íslenska aðalsins spókaði sig í bönkum og kauphöllum heimsins og gerði feita díla á báðar hendur, svo rosalega snjalla. Við hin vorum reyndar ábekingar en höfðum ekki hugmynd um það. Skammsýni okkar og trúgirni borgum við nú dýru verði. Eins og undanfarið ár hafi ekki verið nógu harkalegur skellur á hrjáðri þjóð, þá byrjar vetur númer tvö af engu minna offorsi. Ofan á efnahagshörmungar bætast fleiri ógnir gegn heimilum og heilsufari. Öfugt við stemminguna fyrir tveimur árum þegar við vorum öll svakalega alþjóðleg og smartheitin komu viðstöðulaust frá útlöndum, þá kemur nú þaðan ekkert nema lífshætta.

Bakþankar
Fréttamynd

Forsenda velferðarvarna

Orkunýting og stóriðja eru málefni sem greina menn að í stjórnmálum. Það er ekki nýtt. Deilurnar hafa löngum staðið um tvennt: Annars vegar um hlutfallið milli nýtingar og náttúruverndar. Hins vegar um aðkomu erlendra fjárfesta.

Fastir pennar
Fréttamynd

Föðurlönd og fósturlönd

Um miðja 19. öld voru Íslendingar 60.000 að tölu. Aðeins rösklega helmingur barna náði fimm ára aldri, hin dóu. Ísland var þá á þennan kvarða eins og fátækustu lönd Afríku eru nú.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar allt breyttist ekki

Mér fannst fall Berlínarmúrsins ekkert svo merkilegt. Að minnsta kosti man ég ekkert hvað ég var að gera þegar fréttin barst. Ég man hins vegar ljóslifandi eftir 11. september 2001. Maður var alveg í smá sjokki, fyrst og fremst vegna þess að ég og Lufsan áttum pantaða New York-ferð í desember. Við höfðum skoðað myndir af mollinu sem var í kjallara World Trade Center. Hún vildi hætta við ferðina en ég náði að lempa hana til að fara. Maður tók fyrst og fremst eftir því hvað ameríski fáninn var úti um allt. Blakti alls staðar á húsum og á bílum.

Bakþankar
Fréttamynd

Hlátur í huga

Ég er að hugsa um að fara á hlátursnámskeið," sagði hann ákveðinn og svipti skyrtu út úr skápnum. Honum var greinilega enginn hlátur í hug. "Ókei," sagði ég. "Þarftu þess?" Hann sneri sér að mér grafalvarlegur á svip og sagði dimmum rómi: "Þetta er sko ekkert djók lengur." Það mátti alveg samsinna því. Maðurinn var enn blár eftir tuttugu kílómetra á belti, sturtan hafði ekkert náð honum niður, og nú var hann tekinn að klæða sig með snörpum handtökum.

Bakþankar
Fréttamynd

Skvaldurskjóðurnar

Einhverju sinni þegar það dróst að fundur sem ég átti að sitja hæfist, þar sem lykilmaður var ekki mættur, hófst spjall um daginn og veginn hjá okkur hinum. Talið barst að meintri hlutdrægni fréttamanna, sem þá var í umræðunni. Einn úr hópnum lét í ljós áhyggjur af þessari þróun, en sagði gott til þess að vita að innan stéttarinnar væru líka frábærir fagmenn í greininni. Þar stæðu reyndar tveir menn upp úr. Þeir bæru af. Alltaf mætti treysta því að þeir væru málefnalegir í fréttaöflun og framsetningu. Þessir menn gættu hlutleysis í fréttaflutningi og enginn gæti greint persónulegar áherslur eða pólitíska hlutdrægni í þeirra umfjöllun. Þegar hann nafngreindi þessa tvo menn, hélt ég að hann væri að spauga, og spurði hvort honum væri alvara. „Áttu við að þú sért ekki á sama máli?" spurði hann, og undrun hans var sönn og einlæg. Sama virtist mér um félaga hans. Sjálfri fannst mér umræddir fréttamenn góðir menn og grandvarir, en rammpólitískir, og undarlegt í meira lagi ef stjórnmálaskoðanir þeirra og vantrú á stefnu annarra flokka færu framhjá lesendum eða áheyrendum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Umferðarslysum fækkar

Á tímum þegar flestar fréttir eru heldur vondar fréttir er bæði hollt og gott að halda því til haga sem horfir til betri vegar í samfélaginu. Þetta á við um glímuna við umferðarslys og afleiðingar þeirra.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að svíkja út atvinnuleysisbætur

Mörg íslensk heimili standa frammi fyrir hörmungar­ástandi sem ekki hefur knúið dyra í áraraðir - atvinnuleysinu. Samkvæmt opinberum tölum eru hátt í 15.000 Íslendingar án atvinnu og telst atvinnuleysi nú á haustmánuðum tæp 8%. Á bak við flesta þessa 15.000 einstaklinga eru fjölskyldur - makar og börn - og kemur því atvinnuleysið beint og óbeint við tugi þúsunda Íslendinga.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hættan

Boðskapur fjármálaráðherra við heimkomuna frá ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Istanbul var einfaldlega sá að á þeim vettvangi biðu menn nú góðra frétta frá Íslandi. Með öðrum orðum kom ráðherrann tómhentur heim.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að loknu fárviðri

Segja má að stormur hafi geisað á fjármálamörkuðum, í stjórnmálum og á fleiri sviðum hér á landi undanfarin misseri. Núna, þegar fyrsta alvöru haustlægðin er að ganga yfir, kemur upp í hugann hve mikilvægt er að leita að nýjum tækifærum, því storminn hlýtur að lægja um síðir. Lykilatriðið við að ná árangri er að sjá tækifæri og notfæra sér þau. Ekki horfa of mikið til baka og detta í neikvæðan gír.

Fastir pennar
Fréttamynd

Afsökunarbeiðni forsætisráðherra

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur í tvígang á stuttum ferli í embætti beðist afsökunar úr ræðustól Alþingis. Í fyrra sinnið, í mars, bað hún fyrrverandi vistmenn á Breiðavíkurheimilinu og fjölskyldur þeirra afsökunar á ómannúðlegri meðferð sem þeir sættu þar. Hún gerði það fyrir hönd stjórnvalda og þjóðarinnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hugverkavaktin

Ef einhver væri öruggur um að hlaða niður ólöglega fyrsta Fangavaktarþættinum, þá er það líklegast Ólafur Ragnar, söguhetja úr samnefndum þáttum. Söguþráðurinn skrifar sig nánast sjálfur: „Þetta er sko alveg löglegt, það er ekkert hægt að taka mann fyrir þetta, frændi minn er alltaf að dánlóda svona einhverju stöffi, og það er ekkert gert við hann,“ mundi Ólafur útskýra um leið og hann biði til sölu ylvolga Fangavaktar-mynddiska, beint úr brennaranum. Þátturinn myndi svo enda á Ólafi sitjandi skömmustulegum á meðan lögreglumenn og lögmaður SMÁÍS renna gaumgæfilega yfir hasarmyndirnar og klámið í fartölvunni hans.

Fastir pennar
Fréttamynd

Aftur í sama farið?

Það getur reynst erfitt að breyta út af vananum. Við erum gjörn á að hjakka í sama hjólfarinu og sitja sem fastast í þeim aðstæðum sem við þekkjum best, jafnvel þó þær aðstæður séu ekki endilega þær bestu og breytinga væri þörf. Það felst ákveðið öryggi í þessu venjulega. Þó að okkur takist stundum að hrista upp í hlutunum og breyta tímabundið til er tilhneigingin til að falla aftur í sama farið rík.

Bakþankar
Fréttamynd

Er val?

Þjóðin minnist þess um þessar mundir að ár er liðið frá hruni íslenska bankakerfisins. Fátt er ljóst um það hvað framtíðin ber í skauti sér, annað en að fyrir liggur að landið er svo skuldsett að það mun taka áratugi að vinna sig út úr því. Vitanlega hefur almenningur áhyggjur af stöðu mála, ekki síst þeim þætti að varpa skuldaklafa á herðar afkomendunum. Þessar áhyggjur birtast greinilega í umræðunni um Icesave-málið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skrifleg geymd

Ýmsar sprungur í innviðum íslenzks samfélags minna nú á tilveru sína í kjölfar hrunsins. Margir þóttust ekki þurfa að taka eftir sprungunum, meðan allt virtist leika í lyndi, og þrættu jafnvel fyrir þær, en nú er ný staða komin upp. Landið leikur á reiðiskjálfi. Nú verður ekki lengur undan því vikizt að horfast í augu við ýmsar óþægilegar staðreyndir. Hér ætla ég að staldra við eina slíka.

Fastir pennar
Fréttamynd

Glatað tækifæri

Það gustaði um vinstri menn hér á landi eftir kosningarnar í apríl. Þjóðin hafði veitt minnihlutastjórninni umboð sitt til að takast á við vandann og gert hana að meirihlutastjórn. Tveir vinstri flokkar höfðu fengið meirihlutafylgi; nokkuð sem aldrei hafði áður gerst í sögunni. Enga meðreiðarsveina þurfti með og hægt var að teikna upp vinstri stjórn eins og vinstri menn vildu hafa hana.

Bakþankar
Fréttamynd

Til sölu

Einbýlishús til sölu, eiginkona fylgir í kaupbæti. Einhvern veginn svona hljómaði fyrirsögn á auglýsingu rúmlega fertugrar konu frá Flórída sem birtist í fyrra. Hún hét, og heitir sjálfsagt enn, Deven Trabosh og var orðin hundleið á að reyna að losna við húsið sitt sem var orðið verðlaust en hún þurfti þó að greiða af um hver mánaðamót. Þá höfðu andvökunætur hennar á næturklúbbum bæjarins einnig skilað lélegum árangri. Hús hennar og hjarta var falt fyrir rétt verð og réttan mann en enginn virtist áhugasamur þótt hvort tveggja væri svo sem nógu snoturt. Það var eitthvað hrífandi við hana Deven. Hún bar sig hvorki aumlega né vældi á skjaldborg heimilanna heldur snurfusaði sig og bauð það sem hún átti til sölu. Einhvern veginn var þetta uppátæki svo einlægt og bros hennar svo viðkvæmnislegt undir alltof miklum farða að ekki var hægt að hneykslast á henni. Hún var bara eitthvað svo elskuleg og fullviss um ágæti eigin uppátækis.

Bakþankar
Fréttamynd

Langavitleysan

Rökin fyrir uppbyggingu nýrra álvera á Bakka við Húsavík og í Helguvík á Vatnsleysuströnd eru vel kunn: landkostir okkar til framleiðslu rafmagns eru slíkir að við eigum ekki að láta strauminn, vatnsafl eða gufu, líða hjá án þess að virkja. Það er í fyrsta lagi.

Fastir pennar