

Golf
Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Ólöf María í 42 - 46 sæti
Ólöf María Jónsdóttir er í 42. til 46.sæti á opna Evrópska meistaramótinu í Ungverjalandi en mótið er hluti af Evrópsku mótaröðinni. Ólöf María lék þrjá yfir pari, á 74 höggum í dag á fyrsta keppnisdegi mótsins.

Birgir Leifur í 32. sæti
Birgir Leifur Hafþórsson er í 32.sæti þegar öðrum degi er lokið á opna Texbond mótinu við Garda vatn á Ítalíu í Áskorendamótaröð Evrópu. 153 keppendur hófu keppni. Birgir Leifur var á þremur höggum yfir pari eftir níu holur í morgun en lék stórkostlega seinni níu á 31 höggi.
Tiger með forystu
Tiger Woods er kominn með tveggja högga forystu á fyrsta degi opna breska meistaramótsins í golfi sem nú fer fram á St.Andrews vellinum. Retief Goosen, frá Suður Afríku er efstur þeirra sem lokið hefur leik í dag á 4 höggum undir pari. Keppni hófs í morgun og stendur í til sunnudags

Opna breska meistaramótið hafið
134. Opna meistaramótið í golfi, eða Opna breska meistaramótið eins og það er oftast kallað hófst á hinum sögufræga St.Andrews velli í Skotlandi í morgun en þetta er þriðja risamót ársins.
Harrington ekki með á Opna breska
Írski kylfingurinn Padraig Harrington tekur ekki þátt í opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer nú um helgina á St.Andrews vellinum. Faðir Harringtons lést í gær úr krabbameini og sagði talsmaður hans í samtali við fjölmiðla að Harrington vilji nota helgina til að vera með sinni nánustu fjölskyldu.

O´Hair sigraði í Illinois
Bandaríkjamaðurinn Sean O´Hair sigraði á John Deere mótinu í golfi í Silvis í Illinois um helgina. O´Hair, sem er nýliði í PGA-mótaröðinni, lék á 16 undir pari en jafnir í öðru sæti urðu Bandaríkjamennirnir Hank Kuhne og Robert Damron.

Lokahringur á evrópsku mótaröðinni
Lokahringurinn á skoska meistaramótinu á Loch Lomond vellinum í Evrópsku mótaröðinni í golfi er nýhafinn. Tim Clark frá Suður-Afríku og Hollendingurinn Martin Lafeber eru með forystuna á 15 undir pari.

Birgir Leifur áfram
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er nýbyrjaður að leika lokahring sinn á Open Des Volcans mótinu í Frakklandi sem er hluti af áskorendamótaröð Evrópu. Hann var á fimm höggum undir pari samtals eftir 54 holur í gær og var í 6. til 9.sæti.

Birgir Leifur í fimmta sæti
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson náði í dag frábærum árangri á Open Des Volcans mótinu í Frakklandi sem er hluti af áskorendamótaröð Evrópu. Hann náði fimmta sæti ásamt fjórum öðrum kylfingum. Hann lék í dag á 69 höggum og var samtals á sjö undir pari lék holurnar 72 á 277 höggum.

J.L.Lewis er með forskot
Bandaríkjamaðurinn J.L.Lewis er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á John Deere mótinu í Bandarísku mótaröðinni í golfi. Lewis er 15 undir pari eftir 54 holur. Þrír kylfingar eru í öðru sæti. Hank Kuehne, Richard Johnson og Craig Bowden.

Birgir Leifur í 6. - 9. sæti
Birgir Leifur Hafþórsson lék mjög vel í dag og er í 6. til 9.sæti á Open Des Volcans mótinu í Áskorendamótaröð Evrópu í golfi. Birgir Leifur lék á 69 höggum, á tveimur undir pari á þriðja keppnisdegi. Hann fékk sex fugla, átta pör og fjóra skolla á holunum átján. Hann er samtals á fimm undir pari eftir 54 holur,sex höggum höggum á eftir efsta manni mótsins Frakkanum, Nicolas Joakimides. Mótinu í Frakklandi lýkur á morgun

Ólöf María úr leik
Ólöf María Jónsdóttir er úr leik á enska meistaramótinu í golfi í Evrópsku mótaröðinni. Hún lék á 75 höggum í dag og var samtals á átta höggum yfir pari eftir 36 holur og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Michelle Wie ekki í gegn
Táningsstúlkan stórefnilega Michelle Wie komst ekki í gegnum niðurskurðinn á John Deere mótinu í Bandarísku karlamótaröðinni í golfi. Hún lék í gær á 71 einu höggi á pari vallarsins og var samtals á einu höggi undir pari eftir 36 holur en hana vantaði tvö högg til að komast áfram.

Ólöf María í 74 - 83 sæti
Ólöf María Jónsdóttir eru tveimur höggum undir pari eftir níu holur í dag á öðrum keppnisdegi á opna enska meistaramótinu í Evrópsku mótaröðinni í golfi. Hún er samtals á þremur yfir pari en hún lék á 77 höggum í gær. Hún hefur því bætt stöðu sína frá því í gær er í 74 - 83 sæti. Ólöf María er búinn að fá þrjá fugla, fimm pör og einn skolla á holunum níu á Chart Hills vellinum.

Birgir Leifur í 14 - 22 sæti
Birgir Leifur Hafþórsson er nú í 14. til 22.sæti á Open Des Volcans mótinu í Áskorendamótaröð Evrópu í golfi. Birgir Leifur er á pari eftir fyrri níu holurnar holur í dag á þriðja keppnisdegi. Hann er búinn að fá þrjá fugla, þrjá skolla og þrjú pör par á holunum níu. Hann er samtals á þremur undir pari, fimm höggum á eftir efstu mönnum Frakkanum, Nicolas Joakimides, og Andrew Butterfield, Englandi.</font />

Skoska meistaramótið í golfi
Mikil spenna er á skoska meistaramótinu í golfi á Loch Lomond vellinum í Evrópsku mótaröðinni en þriðji keppnisdagur er nýhafinn. Hollendingurinn Martin Lafeber er efstur á 12 undir pari, Argentínumaðurinn Angel Cabrera er annar höggi á eftir. Darren Clarke er þriðji á tíu höggum undir pari ásamt Alistair Forsyth og Jonathan Lomas.

Wie sjö höggum frá efsta manni
Michelle Wie fimmtán ára táningsstúlkan frá Bandaríkjunum keppir a á John Deere mótinu en mótið er hluti af PGA mótaröðinni. Wie fékk boð frá styrktaraðilum mótsins og virðist hafa gríðarlega stóran aðdáendahóp.

Ragnhildur í 58-65 sæti
Ragnhildur Sigurðardóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék á Bråviken-vellinum í Svíþjóð á sjö höggum yfir pari á fimmtudaginn á fyrsta keppnisdegi Rejmes-mótsins á Telia Tour mótaröðinni í golfi. Ragnhildur lék á 79 höggum og er í 58-65 sæti af alls 105 keppendum. Keppnin heldur áfram á morgun en þá verður skorið niður fyrir lokadaginn sem fram fer á laugardaginn.

Birgir Leifur með forystu
Birgir Leifur Hafþórsson var rétt að ljúka öðrum hring sínum Open des Volcans mótinu í Frakklandi sem er hluti af áskorendamótaröð Evrópu í golfi. Hann lék á 73 höggum í dag eða á tveimur yfir pari og er sem stendur í ellefta sæti ásamt þremur öðrum kylfingum á 3 undir pari. Birgir er með forystu eftir fyrsta dag. Nicolas Joakimides frá Frakklandi er efstur 8 höggum undir pari.

Jim Furyk vann Western mótið
Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk sigraði á Western-mótinu í golfi sem lauk í Lemont í Illinois í gærkvöldi. Furyk tókst að verjast áhlaupi Tiger Woods sem varð annar, tveimur höggum á eftir.

Stefnir í æsispennandi lokahring
Það stefnir í æsispennandi lokahring á Opna Chialis Western mótinu í bandarísku mótaröðinni í golfi. Bandaríkjamennirnir Jim Furyk og Ben Curtis eru efstir og jafnir á tólf höggum undir pari eftir 54 holur.

Björn lék á 69 höggum
Daninn Thomas Björn er með fjögurra högga forystu á Opna evrópska mótinu í golfi. Björn lék þriðja hringinn í gær á 69 höggum en leikið er á Írlandi á sama velli og næsta Ryder-keppni verður haldin á næsta ári.

Couch hefur óvænt forystu
Bandaríkjamaðurinn Chris Couch hefur óvænt forystu á Opna Chialis Western mótinu í bandarísku mótaröðinni í golfi en leikið er í Lemont í Illinois. Couch var boðið á mótið eftir tvo sigra á áskorendamótaröðinni. Hann lék á 67 höggum í gær og er samtals á níu höggum undir pari eftir 36 holur.
Leika við Finna um 15. sætið
Karlalandsliðið í golfi leikur nú gegn Finnum á Evrópumóti áhugamanna á Hillside-strandvellinum í Southport á Englandi en leikið er um 15. sætið á mótinu. Rétt fyrir hádegi var búið að leika sex holur. Stefán Már Stefánsson er tveimur holum yfir í sínum leik, Finnarnir eru yfir í tveimur leikjum og jafnt er í tveimur viðureignum.
Golf: Sigur gegn Finnum
Karlalandsliðið í golfi var rétt í þessu að leggja Finna, 3-2, á Evrópumóti áhugamanna á Hillside-strandvellinum á Englandi. Með sigrinum tryggði íslenska liðið sér 15. sætið á mótinu af tuttugu. Sigmundur Einar Másson, Stefán Már Stefánsson og Heiðar Davíð Bragason unnu leiki sína.
Spilað við Svía um 13.-16. sætið
Íslenska landsliðið í golfi er núna að spila við Svía um 13.-16. sætið á Evrópumóti áhugamanna í golfi. Otto Sigurðsson tapaði þremur fyrstu holunum gegn Niclas Lemke. Jafnt var í leik Arnar Ævars Hjartarsonar og Stefáns Más Stefánssonar gegn Alex Noren og Kalle Edberg eftir fyrstu þrjár holurnar.

Þrír kylfingar efstir
Þrír kylfingar eru jafnir eftir fyrsta keppnisdag á Cialis-mótinu í golfi í Illinois í Bandaríkjunum. Bandaríkjamennirnir Ben Curtis, Jim Furyk og Todd Fischer léku allir á sjö höggum undir pari. Þremenningarnir hafa tveggja högga forystu á Ástralann Robert Allenby og Bandaríkjamennina Chad Campbell og Harrison Frazar.

Ísland-Írland
Íslenska karlalandsliðið í golfi er núna að spila við Íra í keppni um til sextánda sætið á Evrópumóti áhugamanna í golfi. Þegar níu holur voru búnar af fjórmenningnum áttu þeir Örn Ævar Hjartarson og Stefán Már Stefánsson eina holu á Írana Michael McGeady og Jim Carvill.
Golf: Landsliðið hóf leik í morgun
Karlalandsliðið í golfi hóf leik í morgun á Evrópumóti áhugamanna í golfi en leikið er á á Hillside-strandvellinum í Southport á Englandi. Örn Ævar Hjartarson, Heiðar Davíð Bragason, Magnús Lárusson, Ottó Sigurðsson, Sigmundur Einar Másson og Stefán Már Stefánsson skipa liðið.
Golf-Erfitt hjá íslensku sveitinni
Íslenska karlalandsliðið í golfi er í 16. sæti á 27 höggum yfir pari eftir fyrsta daginn á Evrópumóti landsliða áhugamanna á Hillside golfvellinum í Southport í Englandi. Sex kylfingar skipa hvert lið og er spilaður höggleikur í dag og á morgun. 20 þjóðir taka þátt í keppninni. Frakkar og Wales eru efst á einu höggi undir pari.