Úkraínuforseti gagnrýnir að látið sé undan hryðjuverkaríki Úkraínuforseti gagnrýnir Kanadamenn harðlega fyrir að ætla að skila túrbínu úr Nord Stream eitt gasleiðslu Rússa, sem þar var í viðgerð, og segir það brot á refsiaðgerðum. Herinn í Úkraínu segist hafa eytt hergagnabirgðastöð Rússa með nýlega fengnum eldflaugum frá Bandaríkjamönnum. Erlent 12. júlí 2022 19:21
Íranir útvega Rússum hundruð eftirlits- og árásardróna Bandaríkjastjórn segir stjórnvöld í Íran með í undirbúningi að útvega Rússum hundruð eftirlits- og árásar dróna og að þjálfa Rússa í notkun þeirra. Að minnsta kosti tólf óbreyttir borgarar særðust í árás Rússa á heilsugæslu og íbúðarhúsnæði í borginni Mykolaiv í suðurhluta Úkraínu í nótt. Erlent 12. júlí 2022 12:01
„Leikmenn munu fara í loftvarnarbyrgi meðan loftárásir standa yfir“ Úkraínska úrvalsdeildin í fótbolta karla mun fara af stað á nýjan leik í ágúst samkvæmt tilkynningu Vadym Gutzeit, ráðherra æsku og íþrótta í landinu. Það virðist sem Úkraínumenn ætli ekki að láta innrás Rússa stöðva sig í að sparka bolta sín á milli. Fótbolti 12. júlí 2022 09:01
Íranir hyggjast sjá Rússum fyrir hundruðum sprengjudróna Íranir ætla að láta Rússum í té mörghundruð drónasprengjuvélar sem nota á í stríðinu í Úkraínu. Erlent 12. júlí 2022 08:02
Vildi vera krúttlegur teppalistamaður en endaði sem stríðsljósmyndari Óskar Hallgrímsson segist lifa tvöföldu lífi, annars vegar búi hann til krúttleg teppalistaverk ásamt eiginkonu sinni og hins vegar sé hann ljósmyndari á stríðshrjáðu svæði. Innlent 11. júlí 2022 14:31
Segir milljón manna her munu hrekja Rússa frá suðurströndinni Úkraínumenn hyggjast láta milljón manna her, vopnaðan hergögnum frá Vesturlöndum, hrekja Rússa aftur frá hernumdum svæðum landsins. Þetta segir varnarmálaráðherrann Oleksii Reznikov. Erlent 11. júlí 2022 10:23
Stjórnvöld í Úkraínu hvetja íbúa að flýja fyrir gagnárás í Kherson og Zaporizhzhia Stjórnvöld í Úkraínu hafa varað íbúa í Kherson og Zaporizhzhia við yfirvofandi gagnsókn á svæðinu og hvatt þá til að flýja. Svæðin eru nú á valdi Rússa en Úkraínumenn hyggjast freista þess að ná þeim aftur á næstu dögum og vikum. Erlent 11. júlí 2022 08:45
Hefur áhyggjur af samfylkingu Rússa og Kínverja Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist hafa áhyggjur af nánu sambandi Rússa og Kínverja. Hann átti fimm tíma fund með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Indónesíu í gær. Erlent 10. júlí 2022 21:07
Fimmtán látnir eftir sprengingu á fjölbýlishús Að minnsta kosti fimmtán létust og fleiri særðust í sprengjuárás Rússa á fjölbýlishús í borginni Khasiv Yak í austurhluta Úkraínu. Erlent 10. júlí 2022 12:39
Kanada skili rússneskri túrbínu til Þýskalands Volodymyr Zelenskiy, forseti Úkraínu hefur sagt upp sendiherrum landsins í Þýskalandi, Indlandi, Tékklandi, Noregi og Ungverjalandi í skugga deila við Þýskaland. Erlent 9. júlí 2022 23:04
Senda fleiri HIMARS og nákvæmari skot til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að senda fleiri vopnakerfi og nákvæm skotfæri til Úkraínu. Bæði er um að ræða eldflaugakerfi af gerðinni HIMARS, sem gera Úkraínumönnum kleift að gera nákvæmar árásir á skotmörk í allt að hundrað kílómetra fjarlægð, og 155 mm skot í fallbyssur sem hægt er að skjóta af mun meiri nákvæmni en hefðbundnum stórskotaliðsskotum. Erlent 8. júlí 2022 23:15
Rússar halda áfram að kenna öðrum um innrásina Á sama tíma og Rússar leggja undir sig gífurlegar olíu- og gasauðlindir Úkraínu á Donbas svæðinu sem gætu farið langt með að svara orkuþörf Evrópu, halda þeir áfram að kenna Bandaríkjunum og NATO um þeirra eigin innrás í landið. Erlent 8. júlí 2022 19:17
„Pútín mun ekki gráta það að hann sé farinn“ Rishi Sunak fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands lýsti því yfir í dag að hann sæktist eftir að verða næsti leiðtogi Íhaldsflokksins og þar með forsætisráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem þekkir vel til innan Íhaldsflokksins, telur líklegt að annað hvort Sunak eða Liz Truss utanríkisráðherra hafi sigur í leiðtogakjöri. Innlent 8. júlí 2022 18:01
Rússar segjast einungis hafa notað lítinn hluta hernaðarmáttar síns Rússland hefur einungis notað lítinn hluta mögulegs hernaðarmáttar síns í innrás sinni í Úkraínu, að sögn yfirvalda í Kreml. Erlent 8. júlí 2022 17:17
Nýr leiðtogi Íhaldsflokksins í fyrsta lagi kjörinn eftir sex vikur Nýr leiðtogi breska Íhaldsflokksins verður í fyrsta lagi kjörinn eftir sex til sjö vikur en kjörið gæti dregist fram á haustið. Ben Wallace varnarmálaráðherra þykir líklegasti arftaki Borisar Johnson en fleiri þykja þó sigurstranglegir. Wallace segir Úkraínu ekki þurfa að óttast að Bretar láti af stuðningi sínum. Erlent 8. júlí 2022 11:42
Segir Sievieródonetsk á barmi mannúðarhörmunga Ástandið í hinni hersetnu Sievieródonetsk „er á barmi mannúðarhörmunga,“ segir Serhai Haidai, ríkisstjóri Lúhansk í Úkraínu. Hann segir ekkert miðlægt vatnsveitu-, gasveitu- eða rafveitukerfi í borginni, um 80 prósent alls húsnæðis hafi verið eyðilagt og að Rússar fari ránshendi um borgina. Erlent 8. júlí 2022 08:21
Segir Rússa rétt að byrja í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að Rússar séu að „rétt að byrja“ í Úkraínu. Þetta sagði hann í samtali við rússneska þingmenn í dag og manaði hann einnig Vesturlönd til að reyna að sigra Rússland á vígvellinum. Erlent 7. júlí 2022 21:31
Rússar halda uppi stöðugum árásum á íbúðahverfi Rússar halda uppi stöðugum árásum á borgir og bæi í Donetsk héraði í austurhluta Úkraínu. Forseti Úkraínu segir hersveitir landsins sækja fram í suðurhlutanum og langþráð þungavopn frá Vesturlöndum hafi náð að valda miklu tjóni hjá rússneska innrásarliðinu. Erlent 7. júlí 2022 19:21
Vestræn þungavopn loks farin að draga úr mætti Rússa Forseti Úkraínu segir að langþráð þungavopn frá Vesturlöndum séu loksins farin að skila árangri í baráttunni við rússneska innrásarliðið. Úkraínskar hersveitir sæki fram gegn Rússum í suðurhluta landsins. Hörðustu bardagarnir fari þó fram í austurhlutanum þessa dagana. Erlent 7. júlí 2022 14:02
Hafa náð að standa af sér árásirnar hingað til Úkraínski herinn hefur náð að standa af sér árásir Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa skotið á borgina í um það bil tvær vikur segir Vadym Lyakh, borgarstjóri Slóvíansk. Erlent 7. júlí 2022 08:03
Rússar byrjaðir að innlima hluta Úkraínu í Rússland Rússar beita öllum hernaðarmætti sínum þessa dagana til að ná Donetsk héraði á sitt vald og hefur héraðsstjórinn þar skorað á íbúa að flýja til vesturs. Evrópusambandið býst við að Rússar skrúfi brátt alfarið fyrir gas til aðildarríkjanna. Erlent 6. júlí 2022 19:21
Rússar gerðu loftárásir um alla Úkraínu í gærkvöldi Loftvarnaflautur hljómuðu um alla Úkraínu í gærkvöldi og nótt. Héraðsstjórinn í Donetsk héraði hefur skorað á alla íbúa héraðsins að flýja í vesturátt undan stórskotaliðs- og loftárásum Rússa. Erlent 6. júlí 2022 11:50
Enn hart barist í Lysychansk og fólk hvatt til að flýja Ríkisstjóri Donetsk-héraðs hefur hvatt um 350 þúsund íbúa héraðsins til að flýja í ljósi yfirvofandi rússneskrar sóknar. Hann segir enn hart barist í útjaðri Lysychansk. Erlent 6. júlí 2022 10:35
Haldlögðu rússneskt skip sem er sagt flytja stolið korn Tyrkir hafa lagt hald á skip sem siglir undir rússneskum fána vegna gruns um að sjö þúsund tonn af korni sem það flytur séu stolin af Úkraínumönnum. Erlent 5. júlí 2022 14:07
Dauðskelkuð Griner biðlar til Bandaríkjaforseta: Gerðu það, ekki gleyma mér Bréf frá bandarísku körfuboltakonunni Brittney Griner, skrifað í fangelsi í Rússlandi, komst alla leið í Hvíta húsið. Bandarískir fjölmiðlar fengu að birta brot úr því á Þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna 4. júlí. Körfubolti 5. júlí 2022 09:31
Fyrirskipar hernum að halda sókninni áfram Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur skipað varnarmálaráðherra sínum að halda áfram sókn rússneska hersins í Úkraínu eftir að borgin Lysychansk féll í þeirra hendur. Erlent 5. júlí 2022 08:02
Lýsa aðstæðum sem „helvíti á jörðu“ Úkraínskir hermenn eru að koma sér fyrir í nýjum varnarstöðum í austurhluta landsins eftir að Rússar náðu tökum á síðustu borg Luhansk-héraðs. Lysychansk féll i hendur Rússa um helgina og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lýsti í dag yfir sigri í Luhansk. Erlent 4. júlí 2022 22:01
CSKA mun leita réttar síns Rússneska knattspyrnufélagið CSKA Moskva ætlar að leita réttar síns gagnvart ákvörðun FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, er varðar samningsstöðu erlendra leikmanna í Rússlandi. Arnór Sigurðsson er meðal þeirra sem hafa nýtt sér téð ákvæði. Fótbolti 4. júlí 2022 13:46
Kuldinn sem fyrr bandamaður Rússlands Kuldinn hefur lengi verið bandamaður Rússlands þegar komið hefur að því að bera að lokum sigur úr býtum á öðrum Evrópuríkjum. Veturinn 1812 setti hernað Napóleons úr skorðum og hersveitir Hitlers frusu í hel við borgarhliðin að Moskvu í desember 1941. Vladimír Pútín hefur það nú á valdi sínu að skrúfa fyrir flæði gass til Evrópu. Útspil sem Þýzkaland virðist vera algerlega varnarlaust gagnvart. Skoðun 4. júlí 2022 08:02
Lysychansk fallin í hendur Rússa Úkraínuher hefur staðfest að borgin Lysychansk í austurhluta Úkraínu er nú fallin í hendur Rússa. Eftir afar harða bardaga síðustu daga hafa úkraínskar varnarsveitir neyðst til að hörfa frá borginni en áður höfðu Rússar lýst því yfir að borgin væri nú þeirra. Erlent 4. júlí 2022 07:19