Drepa konurnar eftir sólarhring Írakskur öfgahópur, sem heldur tveimur ítölskum hjálparstarfsmönnum í gíslingu í Írak, hefur hótað að drepa konurnar, dragi Ítalíustjórn ekki herlið sitt frá Írak. Hópurinn, sem kallar sig Islamic Jihad, birti kröfur sínar Netinu og gefur ríkisstjórn Ítalíu sólarhring til að verða við kröfum sínum. Erlent 12. september 2004 00:01
Dæmdur fyrir misþyrmingar á föngum Bandarískur hermaður var í dag dæmdur til átta mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa misþyrmt föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Hermaðurinn brotnaði saman í réttarsalnum og sagðist bera fulla ábyrgð á gerðum sínum. Erlent 11. september 2004 00:01
Tveir létust í sprengingu í Basra Tveir létust og þrír liggja sárir eftir að sprengja í vegkanti sprakk nærri bandaríska sendiráðinu í borginni Basra í suðurhluta Íraks í dag. Hinir látnu voru í bifreið á leið fram hjá sprengjunni en þeir sem særðust voru gangandi vegfarendur. Erlent 11. september 2004 00:01
Dæmdur fyrir brotin í Abu Ghraib Fyrsti hermaður þeirrar deildar bandaríska hersins er sér um njósnir og upplýsingaöflun, sem dreginn var fyrir rétt fyrir brotin í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad, fékk í dag átta mánaða fangelsisdóm, lækkun í tign og brottvikningu úr hernum. Erlent 11. september 2004 00:01
Ítölskum konum rænt í Írak Hjálparsamtök í Írak halda því fram að tveimur ítölskum konum hafi verið rænt í miðborg Bagdad. Konurnar voru sjálfboðaliðar í samtökunum „Brú til Bagdad“ sem sinna hjálparstörfum í landinu og voru stofnuð í kjölfar fyrra Írakstríðsins árið 1991. Vitni segja að konurnar hafi verið numdar á brott ásamt tveimur Írökum. Erlent 7. september 2004 00:01
Blóðug átök í Sadr-borg Blóðug átök hafa kostað á fjórða tug manna lífið í fátækrahverfinu Sadr-borg í Írak undanfarinn sólarhring. Hundrað og sjötíu Írakar hafa særst í átökunum. Einn bandarískur hermaður liggur í valnum og nokkrir eru sárir. Erlent 7. september 2004 00:01
15 Írakar fallnir í Bagdad Fimmtán Írakar fórust í átökum í fátækrahverfinu Sadr-borg í Bagdad í Írak í morgun. Bandarískar hersveitir og sveitir hliðhollar Muqtada al-Sadr hafa barist þar af og til frá því í apríl á þessu ári. Bandarískur hermaður féll í átökum í hverfinu fyrr í morgun. Erlent 7. september 2004 00:01
Árás á bílalest Bandaríkjamanna Nokkrir bandarískir hermenn féllu þegar árás var gerð á bílalest þeirra nærri borginni Fallujah í Írak í morgun, að því að sjónarvottar sögðu Reuters-fréttaþjónustunni frá. Talsmenn Bandaríkjahers vildu engar upplýsingar veita. Fallujah er ekki í höndum bandarískra sveita heldur ráða þar írakskar sveitir sem áður störfuðu á vegum Saddams Hússeins. Erlent 6. september 2004 00:01
Þrjú börn létust í loftárásum Sautján létust, þar af þrjú börn, í loftárásum Bandaríkjamanna á Fallujah í Írak í gær. Samkvæmt upplýsingum frá bandaríska hernum féll sprengja á hús þar sem hópur uppreisnarmanna hefur haldið til. Herlið Bandaríkjanna í Írak hefur ítrekað haldið uppi loftárásum á Fallujah eða síðan herlið þeirra dró sig til baka frá borginni í apríl. Erlent 2. september 2004 00:01
Eldflaugum skotið að þinghúsinu Sjö eldflaugum var skotið að þinghúsinu í Bagdad í morgun en þar var fyrsti þingfundur haldinn eftir að Írakar tóku aftur við stjórn landsins. Erlent 1. september 2004 00:01
Loftið í Najaf lævi blandið Loftið í Najaf er lævi blandið eftir að friðarsamkomulag náðist í nótt. Bardagamenn hafa yfirgefið helga mosku þar en undir niðri kraumar tortryggni og óvissa. Erlent 27. ágúst 2004 00:01
Bardagar geisa áfram í Najaf Bardagar geisa áfram í Írak eftir loftárásir Bandaríkjamanna á skæruliðasveitir úr röðum sjíta í Najaf í gær. Árásirnar voru gerðar nærri Imam Ali grafhýsinu sem hefur verið á valdi Mehdi-sveita Muqtada al-Sadr. Bandaríkjamenn ætla sér með árásunum að brjóta niður þá andstöðu sem verið hefur í landinu. Sprengjubrot lentu á grafhýsinu og ollu einhverjum skemmdum.</font /> Erlent 24. ágúst 2004 00:01
Varnarmálaráðherra hótar stórárás Varnarmálaráðherra Íraks hvatti í dag sjíta-múslima í Najaf til að leggja niður vopn, ella yrðu þeir stráfelldir í stórárás síðar í dag. Erlent 24. ágúst 2004 00:01
Tilræði við írakska ráðherra Fjórir lífverðir umhverfismálaráðherra Íraks fórust í sjálfsmorðsárás í morgun. Talið er að um tilræði við ráðherrann hafi verið að ræða en hann slapp ómeiddur. Erlent 24. ágúst 2004 00:01
Reiðubúnir að gefast upp Fylgismenn sjíta-klerksins Muqtada al-Sadrs, sem barist hafa við bandaríska og írakska hermenn í Najaf undanfarnar vikur, segjast reiðubúnir að gefast upp og binda þannig enda á hið gífurlega mannfall sem átt hefur sér stað í borginni að undanförnu. Erlent 24. ágúst 2004 00:01
Vill réttarhöldin frá Bagdad Bandarískur hermaður sem ákærður er fyrir pyntingar og kynferðislega niðurlægingu á írökskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu hefur óskað eftir því að réttarhöldin verði færð frá Bagdad. Hermaðurinn, Charles Graner að nafni, segist ekki eiga möguleika á sanngjörnum réttarhöldum í íröksku höfuðborginni og bar þessa ósk því fram í dag. Erlent 23. ágúst 2004 00:01
Gísl sleppt í Írak Bandarískum blaðamanni, Micah Geran, sem verið hefur í haldi mannræningja í Nassiríja í Írak, var sleppt úr haldi seint í gær. Honum var rænt þrettánda ágúst síðastliðinn og er hann sagður vel á sig kominn. Erlent 23. ágúst 2004 00:01
Loftárásir í kringum moskuna Enn á ný geisuðu harðir bardagar í Najaf í Írak í nótt. Bandaríkjaher gerði ítrekaðar loftárásir á svæðið í kringum Imam Ali moskuna þar sem skæruliðar, hliðhollir Muqtada al-Sadr, halda til. Skriðdrekar eru sagðir í um átta hundruð metra fjarlægð frá moskunni og hafa fregnir borist af því að skotið hafi verið á moskuna. Erlent 23. ágúst 2004 00:01
Moskan á valdi skæruliðanna Barist er í nánd við Imam Ali moskuna í Najaf í Írak sem er enn á valdi Mehdi-skæruliðasveita Muqtada al-Sadrs. Nokkur óvissa hefur ríkt um hvernig ástandið í Najaf væri í raun og veru og á hvers valdi Imam Ali moskan væri. Erlent 23. ágúst 2004 00:01
Myndirnar ekki bannaðar Myndir sem sýna bandaríska hermenn níðast á föngum í herfangelsum í Írak verða ekki bannaðar. Lögmenn hermannanna fóru þó fram á það við frumréttarhöld í Þýskalandi í dag. Erlent 23. ágúst 2004 00:01
Al-Sadr farinn frá Najaf Muqtada al-Sadr er farinn frá Najaf. Reyndar segir lögreglustjórinn í borginni að hann hafi farið úr Imam Ali moskunni fyrir rúmri viku. Mehdi-hersveitir hans berjast samt áfram og hafa í dag tekist á við bandaríska og írakska hermenn í návígi. Sjónarvottar segja bardagana þá hörðustu síðan átök blossuðu upp í borginni fyrir þremur vikum. Erlent 23. ágúst 2004 00:01
Fimm sprengingar í Najaf Fimm háværar sprengingar heyrðust skammt frá Iman Ali moskunni í Najaf fyrr í morgun en harðlínuklerkurinn Muqtada al-Sadr samþykkti í gær að hverfa þaðan ásamt fylgismönnum sínum. Sjónarvottar segja að leyniskyttur hafi verið á sveimi á svæðinu. Erlent 19. ágúst 2004 00:01
Ögurstund í Najaf Komið er að ögurstundu í borginni Najaf í Írak. Þolinmæði stjórnvalda gagnvart Muqtada al-Sadr er á þrotum og árás yfirvofandi. Hann vill hins vegar viðræður. Erlent 19. ágúst 2004 00:01
Árás verður gerð á al-Sadr Árás verður gerð á harðlínuklerkinn Muqtada al-Sadr og menn hans í Najaf, yfirgefi þeir ekki Iman Ali moskuna þar innan nokkurra stunda. Þetta segja talsmenn írakskra stjórnvalda. Erlent 19. ágúst 2004 00:01
Al-Sadr fær lokafrest Iyad Allawi, sem gegnir stöðu forsætisráðherra Íraks, hefur gefið öfgaklerknum Muqtada al-Sadr lokafrest til að yfirgefa Imam Ali moskuna í Najdaf og fyrirskipa hersveitum sínum að leggja niður vopn. Al-Sadr hafði fallist á vopnahlé í gær en setti síðan fram ýmsar kröfur sem ekki var hægt að ganga að. Erlent 19. ágúst 2004 00:01
Lokaárás yfirvofandi Lokaárás er yfirvofandi í Najaf í Írak þar sem harðlínuklerkurinn al-Sadr ögrar stjórnvöldum og neitar að gefast upp. Orrustuþotur og skriðdrekar láta sprengjum rigna í kringum Imam Ali moskuna þar sem al-Sadr heldur til. Erlent 19. ágúst 2004 00:01
Mikil spenna í Najaf Mikil spenna ríkir í Najaf í Írak eftir að harðlínuklerkurinn Muqtada al Sadr neitaði að eiga fund með sendinefnd írakskra stjórnmála- og trúarleiðtoga í gær. Erlent 18. ágúst 2004 00:01
Friðarumleitanir út um þúfur Harðir bardagar geisa í hinni helgu borg Najaf. Friðarumleitanir fóru út um þúfur þegar klerkurinn Muqtada al-Sadr neitaði að hitta friðarsendinefnd í gær. Varnarmálaráðherra Íraks hótar harkalegum viðbrögðum, gefist uppreisnarmenn í borginni ekki upp innan nokkurra stunda. Erlent 18. ágúst 2004 00:01
Fá nokkurra klukkustunda frest Varnarmálaráðherra Íraks segir skæruliða harðlínuklerksins Muqtada al-Sadrs hafa nokkurra klukkustunda frest til þess að leggja niður vopn og gefast upp. Að öðrum kosti megi þeir eiga von á ærlegri ráðningu. Ráðherrann segir að hersveitir yfirvalda og Bandaríkjahers séu reiðubúnar að láta til skarar skríða gegn skæruliðasveitunum. Erlent 18. ágúst 2004 00:01
Bardagar byrjaðir í Najaf Einn fórst og fimm særðust í sprengjuárás í Írak í morgun. Harðir bardagar eru á ný hafnir í borginni Najaf eftir að friðarviðræður fóru út um þúfur. Erlent 15. ágúst 2004 00:01