Íslenska krónan

Íslenska krónan

Allt er viðkemur ríkisgjaldmiðlinum.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kaup­máttur heldur á­fram að aukast

Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 1,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Ráðstöfunartekjur jukust um 6,4 prósent milli ára og vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3 prósent. 

Neytendur
Fréttamynd

Raun­gengið á­fram í hæstu hæðum nema það komi til á­föll í út­flutnings­greinum

Afar hátt afurðaverð í sjávarútvegi og verðhækkanir á áli samhliða því að vægi gagnaveranna í útflutningstekjum þjóðarbúsins fer vaxandi mun sennilega valda því að hliðra raungenginu til lengri tíma, að sögn greinenda Acro, en starfsemi gagnaveranna virðist ekki mjög næm fyrir háu raungengi. Skert samkeppnishæfni þjóðarbúsins vegna hás raungengis gæti því verið komin til að vera, í bili að minnsta kosti, nema það komi til áföll í útflutningsgreinum.

Innherji
Fréttamynd

Ís­land og ESB: samnings­mark­mið, aðildar­viðræður og Evran

Þótt öll ný aðildarríki ESB séu skuldbundin til að taka upp evru má fresta því um óákveðinn tíma. Ríkin sem hafa valið að taka ekki upp evru gera það af því ekki síst að það er pólitískur meirihluti fyrir sjálfstæðri peningastefnu. Þarna virðist meðal annars á ferðinni gildismat sem hverfist um fullveldið og að geta haft ákvörðunarvald yfir efnahagsstefnunni, einkum ef áföll verða.

Umræðan
Fréttamynd

Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að upptaka evrunnar myndi veita Íslandi aðgang að stærra efnahagssvæði og hefði stærðarhagkvæmni í för með sér, en Ísland yrði að innleiða önnur hagstjórnartæki til að tryggja stöðugleika í hagkerfinu í stað sjálfstæðrar peningastefnu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Val­kostir Ís­lands í gjaldmiðlamálum

Fjármála- og efnahagsráðherra efnir til ráðstefnu í dag kl. 14-17 í Silfurbergi í Hörpu í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Skýrslan var unnin af hópi erlendra sérfræðinga og er henni ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skýrslan um krónuna sýni að val­kostirnir séu tveir

Kostnaður við íslensku krónuna er verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli, að mati erlends sérfræðingahóps sem fjármála-og efnahagsráðuneytið fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Fjármálaráðherra segir skýrsluna sýna að valkostir Íslands séu bara tveir, áframhaldandi ástand eða upptaka evru í gegnum aðild að Evrópusambandinu.

Innlent
Fréttamynd

„Munum aldrei“ geta tekið upp evru nema koma vinnu­markaðinum fyrst í lag

Krónan er ekki orsakavaldur þeirrar þrálátu verðbólgu sem peningastefnunefnd Seðlabankans er núna að reyna ná niður með hækkun vaxta, að sögn seðlabankastjóra, heldur er fremur augljóst að miklar launahækkanir eru að birtast með skýrum hætti í verðbólgutölunum. Hann segir að vinnumarkaðslíkanið sé greinilega „brotið“ og það muni ekki lagast sjálfkrafa við mögulega inngöngu Íslands í evrópska myntbandalagið heldur þurfi að koma því í lag á undan.

Innherji
Fréttamynd

Bein út­sending: Rök­styðja hækkun stýrivaxta

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndar um hækkun stýrivaxta og sitja fyrir svörum á blaðamannafundi, sem hefst klukkan 09:30 og verður í beinni hér á Vísi. Þá mun Karen Áslaug Vignisdóttur, aðalhagfræðingur bankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, kynna efni Peningamála, sem komu út í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hækka stýrivexti aftur

Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,50 prósentum í 7,75. Stýrivextir voru hækkaðir í fyrsta sinn um langt skeið þann 18. mars síðastliðinn þegar þeir voru færðir upp í 7,5 prósent. Þá var verðbólga 5,2 prósent, sú sama og í dag. Flestir greiningaraðilar höfðu spáð 25 punkta hækkun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Senni­legt að gjald­eyris­kaupin miði að því að halda aftur af styrkingu krónunnar

Ekki er að sjá að mikil þörf sé á því að stækka gjaldeyrisforða Seðlabankans um þessar mundir, að sögn sérfræðings á gjaldeyrismarkaði, sem telur sennilegra að áform bankans um að hefja á nýjan leik regluleg gjaldeyriskaup miði að því að halda aftur af gengisstyrkingu krónunnar. Markaðurinn ætti að eiga auðvelt með að mæta þessari gjaldeyriseftirspurn hjá Seðlabankanum á komandi mánuðum.

Innherji
Fréttamynd

Er­lendir fjár­festar tekið stöðu með krónunni í auknum mæli síðustu misseri

Á síðustu misserum hefur mátt merkja að erlendir fjárfestingarsjóðir séu í vaxandi mæli að „taka stöðu með krónunni“ þegar litið er til mótaðilasamsetningar á framvirkri stöðu viðskiptabankanna. Hár vaxtamunur við útlönd getur skapað hvata fyrir fjárfesta að kaupa krónueignir með stuttan líftíma þótt reglur Seðlabankans girði fyrir óhóflega stöðutöku.

Innherji
Fréttamynd

Af­koman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri elds­neytis­kostnaðar

Afkoma Icelandair á fyrsta fjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, meðal annars vegna eignasölu og lægri eldsneytiskostnaður en óttast var, og batamerki er að sjá í rekstri félagsins. Áframhaldandi hátt raungengi og vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana setur hins vegar mark sitt á horfurnar inn í árið og útlit er fyrir lakari afkomu á öðrum fjórðungi en á sama tíma í fyrra þótt einingatekjur muni enn aukast.

Innherji
Fréttamynd

Verð­bólga hjaðnar

Verðbólga í apríl mældist 5,2 prósent eftir að hafa mælst 5,4 prósent í mars. Mælingin nú er sú síðasta fyrir næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans, sem er eftir fjórar vikur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Fólk er bara að vinna minna“

Hagfræðingur segir þá þróun eiga sér stað í hagkerfinu að hagvöxtur standi í stað milli ára og það eigi erfitt með að vaxa. Hann bendir á samdrátt í útflutningsgreinum á Íslandi undanfarin ár. Lektor við viðskiptafræðideild HÍ segir skorta á traust í samfélaginu til aðgerða til að ná tökum á verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Verð­bólga eykst enn

Verðbólga mælist 5,4 prósent í mars, miðað við 5,2 prósent í febrúar. Greiningardeildir viðskiptabankanna höfðu spáð 5,4 til 5,5 prósenta verðbólgu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Margt sem bendir til að viðnámsþrótti ferða­þjónustunnar sé ábóta­vant

Þótt fyrirtækin standi almennt vel að vígi til að mæta efnahagsáföllum þá er staðan nokkuð misjöfn milli atvinnugreina og er margt sem bendir til þess að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant, að mati Seðlabankans, einkum vegna þess hversu sveiflukennd eftirspurnin getur verið. Ekki eru hins vegar enn sem komið skýrar vísbendingar um samdrátt í greininni í ár.

Innherjamolar