

Samstarf með utanaðkomandi aðilum.
Verkfræðistofan EFLA leggur áherslu á að virkja ungt fólk innan fyrirtækisins í sem flestum verkefnum þess. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Guðmundur Þorbjörnsson, segir stórar verkfræðistofur vera mikilvægar uppeldisstöðvar fyrir ungt tæknifólk.
Í rúmlega aldarfjórðung hefur Lagnatækni unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði lagna- og loftræstikerfa. Þjónusta við lyfjaiðnaðinn er sérsvið fyrirtækisins. Fyrirtækið byggir á mikilli og fjölbreyttri reynslu og hefur lagt metnað sinn í að fylgja verkum eftir frá fyrstu tillögum að fullbúnum kerfum. Kristján Oddur Sæbjörnsson, vélaverkfræðingur og framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir verkefni stofunnar ná til ólíkra gerða bygginga fyrir nánast öll svið samfélagsins, hvort sem um er að ræða opinberar framkvæmdir eða fyrir einkaaðila.
Verkfræði- og ráðgjafarstofan Navis sér um skipahönnun, ráðgjöf og eftirlit með breytingum á skipum í fjórum heimsálfum. Hún er tilbúin með öflugri og hagkvæmari fiskiskip á teikniborðinu.
Konur eru viðkvæmari en karlar fyrir skaðsemi reykinga og með aldrinum aukast líkur á sjúkdómum og öðrum fylgikvillum til muna.
Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona er stödd í Canet í S-Frakklandi þar sem hún æfir og keppir ásamt sex öðrum Íslendingum. Ragnheiður hefur valið að nota Proderm-sólarvörn til að verja sig gegn sterkri sólinni.
Stefna er hugbúnaðarhús sem hefur farið rólega af stað en fer ört stækkandi. Fyrirtækið hefur nú yfir 500 viðskiptavini sem koma úr öllum áttum. Vefumsjónarkerfið Moya er stolt fyrirtækisins en kerfið hýsir meðal annars vef Akureyrarbæjar.
Vefsíðufyrirtækið Emstrur sérhæfir sig í vefsíðugerð í Drupal-vefumsjónarkerfinu sem er það stærsta sinnar tegundar í heiminum í dag. Undanfarin ár hefur fyrirtækið sett upp fjölda vefja fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga hér á landi og erlendis.
Smartmedia er framsækið margmiðlunarfyrirtæki sem einbeitir sér að vefsíðugerð og sérlausnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Smartmedia er einnig áttundi stærsti hýsingaraðilinn á .is lénum á Íslandi.
Að mörgu er að huga þegar setja þarf á fót vef fyrir fyrirtæki og stofnanir. Allra Átta býður upp á lausnir fyrir alla aðila.
Að hafa góðan vef er fyrirtækjum í dag jafn sjálfsagt og að hafa símanúmer. Veflausnir Advania eiga heiðurinn af mörgum flottustu og öflugustu vefsíðum landsins. Í júní gefst tækifæri fyrir lítil og nýstofnuð fyrirtæki að fá staðlaða vefi á hálfvirði í ve
Boux Avenue er ný undirfataverslun á annarri hæð Kringlunnar. Merkið er breskt og er verslunin í Kringlunni sú fyrsta sem er opnuð utan Bretlands.
Pitsustaðurinn Eldofninn í Grímsbæ við Bústaðaveg er vel falið leyndarmál í miðju íbúðahverfi sem býður upp á vinalegt andrúmsloft og eldbakaðar pitsur í hæsta gæðaflokki. Mikið er lagt upp úr persónulegri og góðri þjónustu.
Glerborg hefur fengið nýjan liðsmann í þjónustudeild sína. Stefán Geir Stefánsson hefur áratuga reynslu úr byggingariðnaðinum.
Sunnudagsbíltúrinn er orðinn miklum mun líflegri með tilkomu fasteignaleitar Mikluborgar í snjallsíma. Áhugasamir húsleitendur geta nú með einföldum smelli á m.miklaborg.is strax séð hvaða eignir eru til sölu á hverjum stað í leit að draumahúsnæðinu.
Einkunnarorð Fasteignasölunnar Mikluborgar eru gæði, fagmennska og árangur í starfi. Mikil áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð starfsmanna og gagnkvæman ávinning allra hlutaðeigandi í viðskiptum.
Úrvals þjónusta við kaupendur og seljendur fasteigna er kjarninn í starfsemi fasteignasölunnar Torgs í Garðabæ.
Hjá fasteignasölunni Fjárfestingu er nóg að gera og hefur verið mikill uppgangur síðustu misseri. Þar er lögð höfuðáhersla á trausta þjónustu og vönduð vinnubrögð og kemur áralöng reynsla starfsmanna að góðum notum.
Húsaskjól fasteignasala býður persónulega þjónustu og vönduð vinnubrögð. Ásdís Ósk Valsdóttir, eigandi Húsaskjóls, segir markmiðið að fara fram úr væntingum viðskiptavina.
EasyTone-skórnir frá Reebok hafa slegið í gegn hjá konum.
Bianco hefur opnað nýja og endurbætta verslun í Kringlunni. Þar er hægt að fá skó, skart og alls kyns fylgihluti í miklu úrvali. Mæðgurnar Elísabet Guðmundsdóttir og Guðfinna Helga Þórðardóttir eru nýir eigendur. "Við erum á sama stað og áður en erum búnar að gera búðina algjörlega upp og breyttum henni mikið. Við erum komnar með nýjar vörur og ætlum að vera með mikið flæði í búðinni. Svo fáum við nýjar vörur á tveggja vikna fresti þannig að það verða alltaf einhverjar nýjungar," segir Elísabet.
Mikil sprenging varð í sölu kaldra sumardrykkja hjá Te og kaffi síðasta sumar. Í ár verða fjórir svalandi sumardrykkir kynntir til sögunnar sem bætast við flóru eldri vinsælli drykkja.
Flugfélag Íslands býður upp á mjög hagstætt verð fyrir hópa. "Það getur jafnvel verið ódýrara að bóka flug og gistingu á þessum sérkjörum heldur en að bóka bara flugið án hópafsláttar,“ segja þær Bergþóra Ragnarsdóttir og Ingibjörg Dís Gylfadóttir.
Í Gleraugnaversluninni Eyesland á fimmtu hæð í Glæsibæ er að finna mikið úrval af gleraugum, linsum og sjóntækjum á mun viðráðanlegra verði en almennt þekkist.
Gjafavöruverslunin Minja býður uppá fallega hönnunarvöru sem kemur fólki í gott skap.
I AM var opnuð í Kringlunni í gær en verslunin býður skartgripi og fylgihluti sem fullnægja öllum þörfum íslenskra kvenna.
Dekkjasalan í Hafnarfirði er eina umboðssalan hérlendis með notuð dekk og felgur. Í gegnum tíðina hefur mikið magn af dekkjum og felgum safnast saman hjá fólki í geymslum og bílskúrum um allt land. Síðustu tvö árin hefur Dekkjasalan starfrækt umboðssölu þar sem fólk getur komið með dekkin og felgurnar, gert umboðssölusamning og starfsmenn sjá um söluna. Dekkjasalan í Hafnarfirði er eina umboðssalan hérlendis með notuð dekk og felgur.
Hjá Vöku er hægt að komast hjá miklum útgjöldum með kaupum á notuðum sumardekkjum. Bestu dekkin rjúka út með ört hækkandi sumarsól og í Vöku gildir hið margkveðna að fyrstir koma, fyrstir fá. Vaka selur einnig ný sumardekk á góðu verði.
Fyrirtækið Betra grip ehf. rekur heildverslun og hjólbarðaverkstæði að Lágmúla 9. Fyrirtækið er umboðs- og söluaðili fyrir Bridgestone-, Firestone- og Dayton-hjólbarða, sem framkvæmdastjórinn Arngrímur Þorgrímsson segir vera með þeim bestu sem völ er á.
Á hverjum degi notum við alls konar húðvörur til að hreinsa og mýkja húðina. Margar þeirra innihalda bæði ilmefni og önnur óæskileg aukaefni og úr verður kokteill af aukaefnum, sem eykur líkurnar á snertiofnæmi.