
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 34-27 | Eyjamenn í úrslit eftir öruggan sigur
ÍBV mun leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir sjö marka sigur gegn Haukum úti í Eyjum í kvöld, 34-27.
ÍBV mun leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir sjö marka sigur gegn Haukum úti í Eyjum í kvöld, 34-27.
Haukar þurfa í kvöld að gera eitt sem þeim hefur ekki tekist undanfarin sex ár sem er að vinna leik í úrslitakeppni á móti ÍBV út í Vestmannaeyjum. Tap hjá Haukum í Eyjum í kvöld þýðir sumarfrí.
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar sýndu því skilning að Selfyssingar settu út á það hvernig Valsmenn framkvæmdu „hraða miðju“ í einvígi liðanna. Stundum hafi það verið gert ólöglega en ekki svo að það skipti miklu máli.
Valur átti ekki í miklum vandræðum að slá Selfoss út í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta. Valsmenn unnu leikina þrjá með samtals 26 marka mun og vantaði bara fjögur mörk til að jafna eigið met frá 2017.
Handboltamaðurinn Ísak Rafnsson hefur ákveðið að yfirgefa uppeldisfélag sitt, FH, og semja við ÍBV.
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var skiljanlega sáttur eftir sigurinn á Selfossi í kvöld. Með honum tryggðu Valsmenn sér sæti í úrslitum Olís-deildar karla.
Valur er kominn í úrslit Olís-deildar karla eftir öruggan sigur á Selfossi, 36-27, í Origo-höllinni í kvöld. Valsmenn unnu einvígið 3-0 og leikina þrjá með samtals 26 marka mun.
Halldór Sigfússon, þjálfari Selfoss, sagði að slæmur lokakafli á fyrri hálfleik hafi verið banabiti sinna manna gegn Val í kvöld.
ÍR tryggði sér í dag sæti í efstu deild karla í handbolta með 27-25-sigri í fjórða leik sínum við Fjölni í umspili um að komast upp.
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var sáttur með sigurinn þegar að Haukar tóku á móti ÍBV í þriðja leik liðanna í 4-liða úrslitum. Fyrir leikinn var ÍBV komið 2-0 yfir og má með sanni segja að þetta hafi verið kærkominn sigur fyrir Hauka.
Haukar minnkuðu muninn í 2-1 í einvígi sínu við ÍBV í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta með 28-25 sigri í leik liðanna að Ásvöllum í kvöld. Í hálfleik var ÍBV þremur mörkum yfir en það var fyrst og fremst frábær innkoma Magnúsar Gunnars Karlssonar í mark Hauka sem varð til þess að heimamenn snér taflinu sér í vil og strengdu líflínu í rimmunnni.
FH-ingurinn og söngvarinn Friðrik Dór Jónsson hefur gefið út nýtt lag sem ætti að koma FH-ingum í gírinn fyrir stórleikinn gegn Val í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.
Gærdagurinn var stór fyrir Valsmanninn Einar Þorsteinn Ólafsson en fyrst var tilkynnt um að hann væri á leiðinni í atvinnumennsku í Danmörku í sumar og seinna um kvöldið hjálpaði hann Valsliðinu að komast í 2-0 í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Selfossi.
Valur vann góðan sex marka sigur er liðið heimsótti Selfoss í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla, 29-35. Valsmenn leiða nú einvígið 2-0 og geta því komið sér í úrslit með sigri á heimavelli í næsta leik.
Hergeir Grímsson, fyrirliði Selfyssinga, var niðurlútur eftir sjö marka tap liðsins á heimavelli gegn Val í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Valsmenn leiða nú einvígið 2-0 og Hergeir og félagar eru því með bakið upp við vegg.
Handknattleiksmaðurinn efnilegi Einar Þorsteinn Ólafsson fetar í fótspor föður síns, Ólafs Stefánssonar, og heldur í atvinnumennsku í sumar.
„Hann segir bara: Gaupi, come on, þetta er ekki neitt,“ sagði Stefán Árni Pálsson í Seinni bylgjunni um umdeilt atvik í leik ÍBV og Hauka í gærkvöld í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta.
ÍBV er komið í 2-0 í einvíginu gegn Haukum í undanúrslitum Olís-deildar karla eftir 27-23 sigur í öðrum leik liðanna í Vestmannaeyjum í kvöld. Eyjamenn geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri á Ásvöllum á laugardaginn.
Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, var að vonum sáttur eftir sigurinn á Haukum í Eyjum í kvöld, 27-23. Eyjamenn eru komnir í 2-0 í einvígi liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla.
Handboltamarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson fékk heilahristing fyrir sex vikum, þegar bolta var skotið í höfuð hans á æfingu. Hann var rúmliggjandi í 3-4 vikur og glímir enn við eftirköst.
Annar leikur ÍBV og Hauka í úrslitakeppni Olís-deildar karla fer fram í kvöld og ef sagan hefur kennt okkur eitthvað þá verða læti í Eyjum í kvöld.
Valsmenn sýndu mátt sinn á móti Selfyssingum í gær þegar undanúrslitaeinvígi liðanna í Olís deild karla í handbolta hófst á Hlíðarenda.
Haukamenn fengu góðar fréttir frá fundi aganefndar HSÍ í gær en þar kom í ljós að hornamaðurinn öflugi Stefán Rafn Sigurmannsson verður ekki í banni í leiknum mikilvæga á móti ÍBV í Eyjum á morgun.
Benedikt Gunnar Óskarsson, leikstjórnandi Vals, var frábær í kvöld í fyrsta leiknum í einvígi Vals gegn Selfossi í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Átta mörk úr átta skotum og sex stoðsendingar var dagsverkið hjá Benedikt Gunnari í ellefu marka sigri Vals, 36-25.
Selfoss tapaði í kvöld fyrsta leiknum í einvígi þeirra gegn Val í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Lauk leiknum með ellefu marka sigri Valsmanna eftir algjört hrun í leik Selfoss í síðari hálfleik. Lokatölur 36-25.
Í kvöld hófst undanúrslitaeinvígi Vals og Selfoss í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta í Origo höllinni. Lauk fyrsta leik liðanna í þessari rimmu með ellefu marka stórsigri Vals og liðið því komið með yfirhöndina í einvíginu. Lokatölur 36-25.
Valur og Selfoss hefja í kvöld undanúrslitaeinvígi sitt í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta á Hlíðarenda en gestirnir frá Selfossi hafa fundið sig einstaklega vel undir Öskjuhlíðinni undanfarin áratug.
Gera þurfti hlé á leik Hauka og ÍBV á Ásvöllum í gær á meðan að formaður dómaranefndar HSÍ, Kristján Gaukur Kristjánsson, reyndi að hemja stuðningsmenn ÍBV. Það gekk lítið þar til að sáttasemjarinn Kári Kristján Kristjánsson kom til aðstoðar.
ÍBV byrjaði einvígið á móti Haukum af krafti en liðið vann fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta sannfærandi.
ÍBV tók forystuna í undanúrslitaeinvíginu gegn Haukum eftir fimm marka sigur á Ásvöllum 30-35. Sigtryggur Daði Rúnarsson, leikmaður ÍBV, var í skýjunum eftir leik.