Ólympíuleikar

Ólympíuleikar

Fréttir af Ólympíuleikum, bæði sumar- og vetrarleikum.

Fréttamynd

Birtu ekki baulið

Áhorfendur á Vetrarólympíuleikunum bauluðu einhverjir á bandaríska varaforsetann JD Vance þegar hann var viðstaddur opnunarhátíð leikanna í Mílanó í gær. Ekki mátti heyra baulið í útsendingu bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC og þulir þar gáfu því engan gaum, þó hið gagnstæða ætti við um kanadíska kollega þeirra hjá CBC.

Erlent
Fréttamynd

Ólympíu­meistarinn með skila­boð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“

Hnefaleikakonan Imane Khelif vill berjast en aðeins í hringnum. Hún er reiðubúin að gangast undir próf til þess. Frá því að hún vann Ólympíugull á leikunum í París 2024 hefur alsírska hnefaleikakonan mátt þola linnulausa herferð níðs og rannsókna á einkalífi sínu, knúna áfram af sumum af valdamestu persónum heims eins og Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Sport
Fréttamynd

Skoða stækkun typpa í skíðastökki

Grunur leikur á því að karlkyns keppendur í skíðastökki hafi sumir hverjir nýtt sér typpastækkun til þess að öðlast forskot á keppinauta sína. Alþjóða lyfjaeftirlitið, WADA, gæti þurft að rannsaka málið.

Sport
Fréttamynd

Elín og Jón Erik fánaberar Ís­lands

Setningarhátíð Vetrarólympíuleikanna í Mílanó og Cortina fer fram annað kvöld og nú er orðið ljóst hverjir fánaberar Íslands verða. Ísland á fjóra keppendur á leikunum og fer sá fyrsti af stað á sunnudaginn.

Sport
Fréttamynd

Fjórar með nóró daginn fyrir fyrsta leik á ÓL

Finnska kvennalandsliðið í íshokkí hefur orðið fyrir barðinu á nóróveirunni á versta tíma, eða daginn fyrir fyrsta leik liðsins á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Önnur lið reyna nú að forðast smit.

Sport
Fréttamynd

ICE-fulltrúar á Vetrar­ólympíu­leikunum: „Þetta er her­sveit sem drepur“

Fréttir af því að deild innan bandarísku útlendinga- og tollgæslunnar (ICE) yrði viðstödd á komandi Vetrarólympíuleikum hafa valdið áhyggjum og ruglingi á Ítalíu, þar sem fólk hefur lýst yfir hneykslun á þátttöku stofnunar sem hefur verið áberandi í fréttum fyrir að leiða harðar aðgerðir Trump-stjórnarinnar í innflytjendamálum.

Sport