Reikna með heitu vatni í hús á sunnudag Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir vinnu ganga vel við að tengja Njarðvíkurlögnina, heitavatnslögnina sem skemmdist þegar hraun rann yfir hana nærri Svartsengi í gær. Reiknað er með því að vatni verði hleypt á kerfið á miðnætti. Tvo sólarhringa tekur að ná fullum þrýstingi á kerfið. 9.2.2024 12:11
Heita vatnið að klárast á Sauðárkróki Það er ekki bara á Suðurnesjum sem skortir heitt vatn því íbúar á Sauðárkóki og nærsveitum eru beðnir um að fara sparlega með heita vatnið sem er að klárast í bænum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skagafjarðarveitum. 9.2.2024 10:27
„Þið vitið ekki neitt um hvernig mitt hjarta slær“ Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, gerir mikinn greinarmun á flóttafólki sem kemur til landsins til að vinna og þeim sem hanga á spena íslenska ríkisins. Meirihluti starfsfólks hans sé af erlendu bergi brotið. Hann gefur svokölluðu „góða fólki“ langt nef. 9.2.2024 06:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Enn gýs í grennd við Grindavík og hefur neyðarstigi verið lýst yfir á Suðurnesjum vegna heitavatnsskorts. Ástæðan er skemmdir á heitavatnslögn af völdum hraunrennslis. 8.2.2024 14:57
Verulega ósáttur að fá ekki að fara til Grindavíkur Hafþór Skúlason, íbúi í Grindavík, er verulega ósáttur við skipulag almannavarna en hann hugðist fara í verðmætabjörgun í bænum í dag. 8.2.2024 10:57
Hádegisfréttatími vegna eldgossins í heild sinni Eldgos hófst upp úr klukkan sex í morgun í Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Hraun náði Grindavíkurvegi á ellefta tímanum. 8.2.2024 10:47
Nýtti Snapchat til að freista fermingarstúlkna og nauðga þeim Theódór Páll Theódórsson, þrítugur matreiðslumaður, hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstelpum, vændiskaup og vörslu barnaníðsefnis. Hann þarf að greiða hvorri stúlkunni þrjár milljónir króna í miskabætur. 8.2.2024 06:01
Hlemmur gjörbreytist í sumar Bílaniður víkur fyrir taktföstum skrefum og mannlífsins hljómi - ómi hjarta Hlemmtorgsins sem fær loksins að slá. Þannig kemst borgarfulltrúi Pírata að orði um breytingar á Hlemmi sem verða að veruleika í sumar. Strætó kveður Hlemm með breytingunum og ekki verða almenningssamgöngur þar fyrr en Borgarlínan leggur í hann. 7.2.2024 16:26
Vill axla ábyrgð eftir misheppnað rán á Pizzunni 23 ára karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir rán á veitingastaðnum Pizzunni fyrir rúmum tveimur árum. Hann hafði lítið upp úr krafsinu og missti bæði síma sinn og lykla á vettvangi glæpsins. Hann sagðist fyrir dómi vilja axla ábyrgð á brotum sínum en hann hefur farið í meðferð vegna fíknivanda. 7.2.2024 15:56
Ítalskur karlmaður handtekinn á Íslandi grunaður um barnaníð Tæplega fimmtugur ítalskur karlmaður búsettur á Íslandi hefur verið handtekinn grunaður um að hafa brotið á að minnsta kosti fimmtíu ungum stúlkum. 7.2.2024 15:13