Fréttamaður

Agnar Már Másson

Agnar Már er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Upp­lausn í Borgaraflokknum og for­maðurinn sakaður um al­ræði

Þingflokkur danska Borgaraflokksins er orðinn helmingi smærri eftir að tveir af fjórum þingmönnum flokksins hafa ýmist verið reknir eða sagt sig úr flokknum. Þriðji flokksmaður íhugar einnig afsögn úr flokknum, en formaðurinn er sakaður um alræði í flokknum.

„Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“

„Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar, annars fáið þið að búa í helvíti,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðla. Hann ýjar að því að sprengja orkuver og brýr í Íran á þriðjudag, opni Íranir ekki Hormússund á ný.

Snjó­flóð hrifsaði með sér göngugarpa

Fjallagarpurinn Sigrún Linda Birgisdóttir var hrifsuð fimmtíu metra niður Akrafjall þegar snjóflóð féll þar í gærmorgun en nokkur snjóflóðahætta var á höfuðborgarsvæðinu í gær.

Logn í dag á undan storminum á morgun

Hægur vindur er á suðvesturlandi í dag en víðast hvar annars staðar er spáð norðaustanátt 8–13 m/s og lítilsháttar éljum. Hiti verður í kringum frostmark yfir daginn, annars 0–8 stiga frost. Á morgun hvessir þó hressilega.

Flugliðanum bjargað eftir hættu­lega björgunar­að­gerð

Bandaríkjaher tókst í gær að bjarga bandaríska flugliðanum sem hefur verið týndur í Íran síðan á föstudag, þegar bandarísk orrustuþota var skotin niður yfir Íran. Íranir og Bandaríkjamenn kepptust við að vera fyrstir til að finna hann.

Karl­menn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði

Karlmenn í Þýskalandi þurfa nú leyfi frá þýska hernum ef þeir ætla að dvelja erlendis lengur en þrjá mánuði. Breytingarnar tóku gildi í byrjun árs en hafa ekki ratað í kastljós fjölmiðla fyrr en nú. Á meðan herskylda er ekki í gildi líta stjórnvöld þó ávallt svo á að leyfið sé veitt, en herskylda tekur vissulega gildi á ný á næsta ári.

Gefur skít í helvítishótanir Trumps

Íranski herinn gerir lítið úr hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem sagði fyrr í dag að „allt færi til fjandans“ í Íran ef Íranir opnuðu ekki fyrir umferð um Hormússund eða samþykktu ekki friðarsamkomulag innan við tvo sólarhringa.

Mæla með að fólk leggi fyrr af stað

Vegna veðurs biður lögregla ferðalanga um að huga að því að leggja fyrr af stað um páskana, þar sem gular veðurviðvaranir taka gildi á mánudag, annan í páskum. Viðvaranirnar verða mögulega færðar upp á appelsínugult.

Sjá meira