Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Farþegum á Keflavíkurflugvelli brá í brún þegar þeir sáu svartan reykmökk við flugvöllinn í dag. Reykurinn reyndist vera vegna slökkviliðsæfingar. 23.4.2026 18:25
„Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Lögregla hefur fellt niður rannsókn á Sigurði Sindra Magnússyni athafnamanni í tengslum við meint kynferðisbrot á Akureyri. Hann segist ekki myndu óska neinum þess að vera ranglega bendlaður við kynferðisbrot en Sigurður hefur síðasta mánuðinn setið undir aðkasti á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt er að hann sé nauðgari. Hann segist aðeins hafa leigt húsnæði þar sem meint brot átti sér síðan stað og því hafi hann verið boðaður í skýrslutöku við upphaf lögreglurannsóknar. Að öðru leyti komi hann ekki nálægt málinu. 20.4.2026 23:40
Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Kona var í dag flutt á sjúkrahús í kjölfar eldsvoða í Kópavogi þar sem hún hafði andað að sér reyk er hún flúði út um stigagang fjölbýlishúss. Eldur hafði komið upp í nærliggjandi kjallaraíbúð. 20.4.2026 18:04
Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Þrír menn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir í Reykjavík um helgina þar sem þeir voru grunaðir um að draga tvær fjórtán ára stúlkur á tálar. 20.4.2026 17:00
Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hyggst segja sig frá þingstörfum þar sem hún hefur verið skipuð í embætti sendiherra til fimm ára. Hún hefur störf 1. ágúst. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að hún verði sendiherra í London í Bretlandi. 20.4.2026 15:31
Kennarasambandið mismunaði konu Kennarasamband Íslands mismunaði starfsmanni á grundvelli kyns þegar stjórn sambandsins neitaði að leiðrétta laun konu í samræmi við laun karls sem vann við svipað starf hjá aðildarfélagi Kennarasambandsins. 16.4.2026 21:55
Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Reykjavíkurborg hyggst leggja tíu milljónir króna í að efla tónleikastaði í miðbænum og byggja upp æfingaaðstöðu við Hlemm fyrir á tólf til átján hljómsveitir. Er þetta hluti af endurreisn Úrbótasjóðs tónleikastaða, sem var fyrst settur á laggirnar í kórónuveirufaraldrinum. 16.4.2026 20:45
„Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gagnrýnir orðræðu Miðflokksmanna um hinsegin málefni og sakar þá um popúlisma. Þetta gerir hann eftir að varaformaður Miðflokksins líkti flöggun regnbogafánans í skólum við eins konar „kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni“. 16.4.2026 19:51
Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu „Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann. 16.4.2026 18:18
MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði á menntaþingi í gær að skólar ættu aftur að taka upp tölustafakerfi. Slíkar breytingar krefðust breytinga á aðalnámskrá. 16.4.2026 17:00