Íþróttafréttamaður

Ágúst Orri Arnarson

Ágúst Orri er íþróttafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Mbappé bætti upp fyrir hrika­legt klúður

Real Madrid vann hádramatískan 2-1 sigur þegar fallbaráttulið Rayo Vallecano kom í heimsókn í 22. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar. Kylian Mbappé klúðraði fyrir opnu marki en bætti upp fyrir það undir blálok leiksins og skoraði sigurmarkið. Gestirnir enduðu með níu menn inni á vellinum.

Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð

Manchester United fagnaði þriðja sigrinum í röð undir stjórn Michael Carrick þegar Fulham kom í heimsókn í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Lokatölur 3-2 eftir mikla dramatík. Heimamenn misstu niður tveggja marka forystu en Benjamin Sesko skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

„Þetta svíður en við gáfum þeim al­vöru leik“

Snorri Steinn Guðjónsson var sársvekktur eftir 31-28 tap Íslands gegn Danmörku í undanúrslitaleik EM í handbolta. Hann segist samt ekki hafa getað beðið um mikið meira frá strákunum, litlu hlutirnir féllu bara ekki með þeim.

„Ég hugsa að þetta sé EM-met“

„Við hefðum klárlega getað unnið stærri sigur“ sagði Alfreð Gíslason eftir að hafa lagt Króatana hans Dags Sigurðssonar að velli í undanúrslitum EM í handbolta.

Sig­valdi verður ekki með í kvöld

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, hefur valið þá sextán leikmenn sem munu taka þátt í undanúrslitaleiknum gegn Danmörku í kvöld.

„Við munum þurfa eitt­hvað extra til að vinna“

„Menn eru búnir að berjast fyrir þessu mjög lengi, núna erum við komnir og við erum ekki hættir. Maður skynjar það alveg á strákunum“ segir Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins fyrir slaginn gegn Danmörku í kvöld. Mögulega mun Ísland koma andstæðingnum aðeins á óvart. 

Portúgölsku bræðurnir sendu Svía sára heim

Portúgal vann 36-35 sigur gegn Svíþjóð og tryggði sér þar með fimmta sætið á EM í handbolta, eftir mikinn baráttuleik. Martim Costa var markahæstur í leiknum og er markahæsti maður mótsins hingað til.

„Eins og Gísli Þor­geir en getur líka skotið fyrir utan“

„Ef þú myndir hitta hann úti á götu myndirðu ekki halda að hann væri einhver frábær handboltamaður, þú myndir frekar skjóta á að hann væri bókasafnsvörður“ segir Jóhann Gunnar Einarsson um Mathias Gidsel, einn besta leikmann Danmerkur sem mætir Íslandi í undanúrslitum EM í handbolta í kvöld.

Sjá meira