Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Kona á þrítugsaldri sem sakfelld var fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfsmanni á vistheimilinu Vinakoti árið 2022 fær ekki áheyrn Hæstaréttar. Hún taldi málið hafa verulegt almennt gildi þar sem það varðaði mannréttindi minnihlutahóps og þær kröfur sem gera verði til rannsóknar brota þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu. 11.6.2026 13:14
Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur lokið árlegri úttekt sinni á íslensku efnahagslífi, telur stjórnvöld hafa með viðeigandi hætti hert taumhald í hagstjórn til að bregðast við innlendum eftirspurnarþrýstingi. Þrátt fyrir það hafi launahækkanir verið töluverðar, verðbólga haldist mikil og verðbólguvæntingar háar. Jafnframt hafi aukin alþjóðleg óvissa vegna átaka í Mið-Austurlöndum aukið hættu á að hagvöxtur verði minni en ella og að verðbólga verði meiri. 11.6.2026 11:00
Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun VR, LÍV og Fagfélögin efna til opins fundar fimmtudaginn 11. júní um verðbólguna, verðlag og laun. Fundurinn, sem ber yfirskriftina Eggið eða hænan, hefst klukkan 08:30 og verður í beinni útsendingu á Vísi. 11.6.2026 08:02
Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna. 10.6.2026 16:24
Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga. 10.6.2026 14:48
Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafa ákveðið að vinna að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu frumathugunar. Ítrekað hefur verið bent á skörun verkefna stofnananna tveggja, meðal annars í skýrslum Ríkisendurskoðunar. 10.6.2026 13:12
Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið ákærður fyrir að flytja 43 kíló af sterku kókaíni til landsins með Norrænu í mars síðastliðnum. Um er að ræða eitt stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar. 10.6.2026 11:04
Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Frá 1. janúar 2024 til 31. maí 2026 lauk 64 eftirlitsmálum á lækna og tannlækna vegna lyfjaávísana. Einu máli lauk með takmörkun á starfsleyfi. 10.6.2026 10:03
Umdeild brottfararstöð leidd í lög Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður. 9.6.2026 16:08
Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, flutti í dag árlega ræðu sína á Alþingi um ósk hans um að listaverkið Svarta keilan, sem stendur við þinghúsið, verði fjarlægð. Hann kveðst ekki hafa trú á öðru en að nýr meiri hluti borgarstjórnar láti verða af því. 9.6.2026 13:52