Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu boða til fundar um boðaða skattahækkun á fyrirtæki í fjármálageiranum. Fundurinn hefst klukkan 13 og má sjá í beinni útsendingu á Vísi. 9.6.2026 12:32
Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Formaður Starfsgreinasambandsins hefur miklar áhyggjur af ákvörðun forsvarsmanna Elkem um að rifa seglin verulega í sumar vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna járnblendis. Ákvörðunin komi til með að hafa vel launuð sumarstörf af tugum ungmenna. 9.6.2026 11:58
Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Forsvarsmenn Elkem á Íslandi hafa ákveðið að slökkva á einum þriggja ofna járnblendisverksmiðju félagsins á Grundatanga í sumar. Þetta er gert vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna kísilmálma. Með því að draga úr framleiðslunni yfir sumartímann getur félagið haldið öllu fastráðnu starfsfólki í vinnu en lítið sem ekkert verður ráðið í sumarstörf. 8.6.2026 14:48
Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Starfsmannaleigu hefur verið gert að endurgreiða starfsmanni sínum 15 þúsund krónur sem dregnar voru af launum hans vegna meints brots á húsreglum, en starfsmaðurinn leigði herbergi af starfsmannaleigunni. Þá var starfsmannaleigunni einnig gert að endurgreiða starfsmanninum ofgreidda leigu. 8.6.2026 12:42
Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja Guðlaug M. Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. 5.6.2026 16:52
Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Kjartan Smári Höskuldsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Íslandssjóða. 5.6.2026 16:38
Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi stefnir á sögulegt sund niður Lagarfljót. Tímasetning er ekki enn ljós en kappinn stefnir á að láta til skarar skríða um leið og veður leyfir eftir sjómannadag. Tilgangurinn er að vekja athygli á þjónustu Píetasamtakanna á Austurlandi og um land allt. 5.6.2026 15:29
Rafbyssum aldrei beitt oftar Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs drógu laganna verðir rafbyssu úr slíðri eða ógnuðu með tækinu í þrjátíu málum og í fimm málum var því beitt. Þetta er mesta notkun rafbyssa á einum ársfjórðungi frá því að þær voru teknar til notkunar en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var rafbyssum beitt næst oftast, eða fjórum sinnum við handtöku. 5.6.2026 14:49
Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í gær að karlmaður á þrítugsaldri hefði gerst sekur um nauðgun með því að hafa samræði við þrettán ára stúlku. Í héraði var hann sýknaður á þeim forsendum að stúlkan hefði veitt samþykki. Talskona Stígamóta gagnrýnir að barnið hafi ekki fengið niðurstöðu í mál sitt fyrr en rúmum fjórum árum eftir nauðgunina. 5.6.2026 13:02
Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Lyfja og Einar Birgir Haraldsson, eigandi Borgar apóteks, hafa komist að samkomulagi um að falla frá fyrirhuguðum kaupum Lyfju á Borgar apóteki í Borgartúni. Samrunatilkynning sem var til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu hefur því verið afturkölluð. Ástæðan er sögð frummat Samkeppniseftirlitsins á samrunanum. 5.6.2026 12:49