Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Landsréttur hefur sýknað félögin BPS, Eignarhaldsfélagið Borgun, Teya Iceland, sem áður hét SaltPay, og Hauk Oddsson, fyrrverandi forstjóra Borgunar, af kröfum Landsbankans í Borgunarmálinu svokallaða. 20.2.2025 16:09
Refsing Dagbjartar þyngd verulega Landsréttur hefur þyngt fangelsisdóm Dagbjartar Guðrúnar Rúnarsdóttur, konu á fimmtugsaldri, í Bátavogsmálinu svokallaða. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi hana í tíu ára fangelsi, en Landsréttur dæmdi hana í sextán ára fangelsi. 20.2.2025 15:12
Sameinar sýslumenn: Róar taugar starfsmanna og segir ekkert að óttast Dómsmálaráðherra mun leggja fram frumvarp um að sameina öll níu sýslumannsembætti landsins í eitt. „Ég geri mér grein fyrir að þessi áform geta vakið upp óvissu og jafnvel óöryggi. Það er skiljanlegt, en ekkert ber að óttast,“ segir ráðherra í tölvubréfi til starfsfólks. 20.2.2025 15:04
Loðnuvertíð eftir allt saman Hafrannsóknarstofnun hefur gefið út uppfærða ráðgjöf upp veiðar á 8589 tonnum af loðnu. 20.2.2025 13:34
Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Heimar hf. hafa undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Tryggvagötu ehf., sem á fasteignirnar að Tryggvagötu 10 og 14. Fasteignirnar hýsa Exeter hótelið og samskiptafélagið Aton. Bygging fasteignanna var mjög umdeild enda var friðað hús rifið til þess að þeim yrði komið fyrir. 20.2.2025 13:08
Mátti ekki kalla mann nauðgara með barnagirnd eftir allt saman Ummæli konu um mann, sem hún sagði hafa nauðgað bróður hennar, í Instagramskilaboðum til unnustu hans hafa verið dæmd dauð og ómerk í Hæstarétti. Dómurinn féllst hins vegar ekki á að manninum hefði tekist að sanna að nokkuð samhljóma nafnlaus ummæli í Facebook-hópi þolenda ofbeldis hefðu verið eftir konuna. 20.2.2025 11:50
Play í sögulegri lægð eftir merkingu Kauphallar Gengi hlutabréfa í flugfélaginu Play hefur lækkað um tæp sautján prósent það sem af er degi og hefur aldrei verið lægra. Í gær var greint frá því að félagið hefði verið athugunarmerkt af Kauphöllinni vegna ábendingar endurskoðenda um rekstrarhæfi félagsins. 20.2.2025 10:54
Fleiri ótímabundin verkföll boðuð Félagsfólk Félags leikskólakennara, sem starfar í leikskólum í Hafnarfirði og Fjarðabyggð hefur samþykkt að fara í ótímabundin verkföll, hafi samningar ekki náðst fyrir 17. mars annars vegar og 24. mars hins vegar. 19.2.2025 14:05
Langflestir hafa minnsta trú á Ingu Þriðjungur þjóðarinnar hefur minnstar væntingar til Ingu Sæland af ráðherrunum ellefu í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Forsætisráðherra ber höfuð og herðar yfir aðra ráðherra hvað væntingar varðar. 19.2.2025 13:30
Örn skipaður landsbókavörður Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra Logi Már Einarsson hefur skipað Örn Hrafnkelsson í embætti landsbókavarðar. 19.2.2025 12:38