Grænlendingar bjartsýnir þrátt fyrir loftslagsbreytingar Ný ríkisstjórn Grænlands horfir til grænna lausna og ætlar ekki að veita leyfi til olíu- og gasvinnslu. Gífurleg uppbygging innviða eins og flugvalla, hafna og vega á sér stað á Grænlandi sem kynnt hefur verið á Hringborði norðurslóða í Hörpu. 15.10.2021 19:55
Lögregla hefur lokið rannsókn vegna andláts í Vindakór Rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á andláti Daníels Eiríkssonar. Daníel fannst illa leikinn fyrir utan heimili sitt í Vindakór þann 2. apríl síðastliðinn og lést af sárum sínum á Landspítalanum daginn eftir. 15.10.2021 18:50
Felldi TM í Landsrétti vegna vinnuslyss eftir tap í héraði Landsréttur viðurkenndi í dag bótaskyldu TM vegna slyss sem karlmaður varð fyrir er hann var að færa tvö hundruð lítra olíutunnu. TM hélt því fram fyrir dómi að ekki hefði verið um slys í skilningi bótaréttar að ræða. 15.10.2021 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Allar forsendur eru til staðar til að halda áfram tilslökunum innanlands, að sögn sóttvarnalæknis. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru hlynntir því að afnema samkomutakmarkanir að fullu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 15.10.2021 18:00
Hélt að hún væri að deyja þegar hún missti allt hárið Allt í einu byrjaði hún að fá skallablett og svo fór allt hárið á örskömmum tíma. „Ég hélt ég væri að deyja úr einhverjum hræðilegum sjúkdómi. Sem betur fer var það ekki svo en það breytti því þó ekki að mér leið hræðilega með að missa fallega hárið mitt,“ segir Vilborg Friðriksdóttir sem segir sögu sína í Íslandi í dag. 4.10.2021 23:55
Ellefu mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir líkamsárás og fyrri brot Karlmaður hefur verið dæmdur til ellefu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir líkamsárás á Akureyri. Um er að ræða eins mánaðar hegningarauka við fyrri tíu mánaða dóm sem maðurinn hlaut í mars síðastliðnum. 4.10.2021 22:54
Þórðargleði og þjáningar Facebook-notenda á Twitter Samfélagsmiðillinn Facebook og allir miðlar tengdir honum hafa legið niðri frá því á fjórða tímanum í dag. Af viðbrögðum netverja á samkeppnismiðlinum Twitter að dæma er ljóst að það hefur mikil áhrif á landann. 4.10.2021 21:42
Neytendastofa innkallar andlitsgrímur frá Xiaomi Neytendastofa hefur innkallað andlitsgrímu af gerðinni Smartmi frá framleiðandanum Xiaomi, sem seld var í verslun Tunglskins ehf. Þá hefur sala og afhending grímunnar jafnframt verið bönnuð. 4.10.2021 20:31
Morgunblaðið hafi ekki valdið saklausum börnum vanvirðu með myndbirtingu Foreldrar tveggja ungra barna sem birtust á mynd við Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins kærðu myndbirtinguna til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands. Siðanefndin taldi birtinguna ekki hafa verið til þess fallna að valda börnunum óþarfa sársauka eða vanvirðu. 4.10.2021 19:31
Segir ótvírætt að þingið hafi lokaorðið um gildi kosninga Formaður undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar segir alveg ótvírætt að þingið hafi síðasta orðið um það samkvæmt stjórnarskrá hvort kosningar séu gildar og hvort þingmenn séu rétt kjörnir. 4.10.2021 18:32