Tekjur Íslendinga: Vigdís sú eina á topp tíu með körlunum Óskar Sesar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins ber höfuð og herðar yfir aðra embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja hvað varðar tekjur. Samkvæmt nýútkomnu Tekjublaði Frjálsrar Verslunar var Óskar Sesar með rúmlega sex milljónir króna í mánaðartekjur í fyrra. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands er eina konan á topp tíu listanum. 19.8.2021 13:24
Síbrotamaður dæmdur í þriggja ára fangelsi Tómas Helgi Jónsson var á þriðjudag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar og ævilangrar sviptingar ökuréttinda fyrir umferðar- og fíkniefna- og vopnalagabrot auk eldri brota. Tómas Helgi á að baki áralangan brotaferil. 19.8.2021 11:18
Erilsamt að vanda hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti 142 sjúkraflutningum í gær. Í Facebookfærslu slökkviliðsins segir að fyrir nokkrum vikum hefðu svo margir sjúkraflutningar þótt til tíðinda en nú sé sá fjöldi „normið.“ 19.8.2021 08:38
Fimm mánuðir frá upphafi eldgossins í Fagradalsfjalli Fimm mánuðir eru í dag frá upphafi eldgossins í Fagradalsfjalli á Reykjanesskaga. Samkvæmt nýjustu mælingum Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands er hraunið sem myndast hefur í gosinu orðið 119 milljónir rúmmetra að rúmmáli og 4,4 ferkílómetrar að flatarmáli. 19.8.2021 07:23
Reyndi að ræna verslun vopnaður hamri en fór heim tómhentur Tilkynnt var um rán úr verslun í Hafnarfirði klukkan 03:40 í nótt. 19.8.2021 06:37
Tekjur Íslendinga: Onlyfans-stjarna er tekjuhæsti áhrifavaldurinn Samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar Verslunar sem kom út í dag þénaði Klara Sif Magnúsdóttir rúmlega eina milljón króna á mánuði árið 2020. Helsta tekjulind Klöru Sifjar er vefsíðan Onlyfans, en hún selur áskrifendum sínum aðgang að erótísku efni í gegnum síðuna. 18.8.2021 12:01
Tekjur Íslendinga: Tekjuhæsti listamaður landsins er klippari Elísabet Ólafía Ronaldsdóttir klippari var með rúmlega sex milljónir króna í mánaðartekjur árið 2020 samkvæmt tekjublaði Frjálsar Verslunar sem kom út í dag. 18.8.2021 11:30
Réttarhöld yfir R. Kelly hefjast í dag Réttarhöld yfir tónlistarmanninum R. Kelly hefjast í dag með opnunarræðum sóknar- og varnaraðila. Fjöldi kvenna hefur sakað tónlistarmanninn um kynferðisbrot. 18.8.2021 09:41
Kanna hvernig taka megi á móti afgönsku flóttafólki Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra segist bíða eftir tillögum flóttamannanefndar um hvernig megi taka við afgönsku flóttafólki. 18.8.2021 07:35
Skýjað að mestu og lítilsháttar væta í dag Fremur hæg, breytileg átt verður í flestum landshlutum en Suðaustan fimm til tíu metrar á sekúndu með Suðurströndinni í dag. 18.8.2021 07:02