Edduverðlaunahátíðinni aflýst Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar hefur tilkynnt að Edduverðlaunahátíðin fari ekki fram með hefðbundnum hætt í ár líkt og stóð til. 5.8.2021 12:55
Skilur ekki hvers vegna lokað er á sviðslistir Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar er hugsi yfir því hvers vegna lokað er á sviðslistir þegar tjaldsvæðum og sundlaugum er haldið opið. 5.8.2021 11:01
Trommari The Offspring rekinn fyrir að afþakka bóluefni Pete Parada, trommari pönkhljómsveitarinnar The Offspring tilkynnti í gær að hann hann hefði verið rekinn fyrir að neita að láta bólusetja sig. „Það hefur verið ákveðið að það sé hættulegt að umgangast mig, í stúdíóinu og á tónleikaferðalagi,“ sagði hann á Instagram. 5.8.2021 10:08
Þrjú látin eftir lestarslys í Tékklandi Tvær lestir rákust saman í dag nálægt tékkneska bænum Pilsen. Þrjú eru látin og sex eru í lífshættu. Tékknesk yfirvöld kenna mannlegum mistökum um. 4.8.2021 17:10
Löng bið á bráðamóttöku og þung staða á Landspítala Landspítali vekur athygli á því að mikið álag er núna á spítalanum, sérstaklega á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttöku vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. Þetta segir í tilkynningu frá Landspítalanum. 4.8.2021 16:28
Náttúrulitun í nútímasamhengi á Hönnunarsafni Íslands Sigmundur Páll Freysteinsson er fatahönnuður sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2019. Hann hefur dvalið í rannsóknarrými Hönnunarsafns Íslands í sumar með það að markmiði að þróa ný kerfi í sjálfbærri hönnun og umhverfisvænni framleiðslu, sem nýtir auðlindir Íslands. 4.8.2021 16:01
Havarti heitir nú Hávarður Mjólkursamsalan hefur ákveðið að breyta nafni ostanna Havarti og Havarti krydd í Hávarð og Hávarð krydd. Ástæðan er samningur Íslands og Evrópusambandsins um vernd á afurðaheitum. 4.8.2021 12:44
Hvort er hagkvæmara, hjólhýsi eða hótel? Á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands er að finna reiknivél sem reiknar út hvort sé hagkvæmara, kaup á hjólhýsi eða gisting á hóteli. Reiknivélin var sett upp í tilefni af því að metsala hefur verið á ferðavögnum síðustu tvö ár. 4.8.2021 10:36
Metumferð um Hringveginn Umferð um Hringveginn jókst um nærri sex prósent í júlí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Met var slegið í mánuðinum en umferðin reyndist 2,3 prósentum meiri en í júlí 2019 þegar fyrra met var sett. 4.8.2021 10:04
Hinsegin dagar hefjast á morgun Hinsegin dagar 2021 hefjast með málningu hinsegin fánalita á Ingólfsstræti, milli Laugavegar og Hverfisgötu klukkan 12 á morgun, þriðjudag. Málun regnboga er hefðbundið upphaf Hinsegin daga í Reykjavík. Þema Hinsegin daga í ár er Hinsegin á öllum aldri. 2.8.2021 22:59