Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson fékk óvænt heiðursverðlaun RIFF í gær fyrir æviframlag sitt til kvikmyndalistarinnar. Verðlaunin voru veitt á sérstakri tvöfaldri sýningu samstarfsverka Sigurjóns og leikstjórans heitins Davids Lynch. 26.9.2026 13:34
Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Par var dæmt í átta ára fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á rúmum átján kílóum af kókaíni til landsins í maí síðastliðnum. Fíkniefnin voru flutt til landsins frá Frankfurt í Þýskalandi í tveimur farangurstöskum sínum. Annað þeirra sagist hafa keypt töskurnar notaðar og að þau hafi ekkert vitað um efnin í þeim. 26.9.2026 11:55
Enn hætta á skriðum Enn er hætta á skriðum og grjóthruni á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum og nokkuð hefur verið um grjót sem hefur fallið á vegi. Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu síðan á fimmtudag og spáð er áframhaldandi úrkomu fram á mánudag. 26.9.2026 11:48
Loka hringveginum við Jökulsárlón Hringveginum verður lokað við Jökulsárlón vegna malbikunarframkvæmda á svæðinu. Lokað verður frá klukkan 20:00 annað kvöld, sunnudaginn 27. september, til klukkan 07:00 mánudagsmorguns, 28. september. 26.9.2026 11:24
Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Íranir lögðu fram tillögu að samkomulagi við Bandaríkin um opnun Hormússunds innan við viku með milligöngu Katar. Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað tillögunni. 26.9.2026 08:33
Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Gera má ráð fyrir talsverðri úrkomu um norðvestanvert landið í dag en slyddu og snjókomu til fjalla. Skýjað verður með köflum sunnan- og austantil og sums staðar væta. Hiti verður á bilinu þrjú til tólf stig, svalast á Vestfjörðum en mildast á landinu austanverðu. 26.9.2026 07:47
Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna umferðarslyss í gærkvöldi eða nótt. Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar. 26.9.2026 07:26
Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Snæbjörn Ragnarsson, tónlistarmaður og sköpunarstjóri á auglýsingastofunni Pipar TBWA, segir gervigreind vera gagnlegt tól í hönnunarvinnu en hún eigi ekki að koma að lokaafurð hönnunarinnar. Umræðan sé strembin en enn eigi almenningur eftir að átta sig á því hvað gervigreind raunverulega sé. 14.9.2026 23:10
Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Hryssan Vordís frá Sturlureykjum hafði verið týnd í fimmtíu klukkustundir þegar hún fannst í sjálfheldu í mýrarlæk. Eigandi hennar segir hana nú vera komna yfir erfiðasta hjallann en langt endurhæfingarferli sé í vændum. 14.9.2026 21:39
Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til í útkall langt á hafi úti í dag. Um var að ræða veikindi skipverja um borð í norsku línuveiðiskipi sem statt var töluverðan spöl norðvestur af landinu. Þetta er annan daginn í röð sem Gæslan er kölluð langt á haf út. 14.9.2026 21:08