Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 10. október 2026 21:18 Fjöldi fólks tók þátt í kröfugöngu á vegum félagsins Ísland-Palestína. Þórdís Reynisdóttir Félagið Ísland-Palestína stóð fyrir kröfugöngu frá Hlemmi og samstöðufundi á Austurvelli í kjölfarið í tilefni alþjóðlegs aðgerðardags fyrir Palestínu. Félagið krefst þess að íslensk stjórnvöld láti verkin tala. „
Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu. Ekkert hefur hins vegar komið fram um hvaða aðgerða Ísland hyggst grípa til til að fylgja yfirlýsingunni eftir,“ segir í tilkynningu frá félaginu Ísland-Palestína. Gangan endaði með samstöðufundi á Austurvell. Þórdís Reynisdóttir Alþjóðlegt bandalag fyrir Palestínu boðaði í dag til alþjóðlegs aðgerðadags en hundruð samtaka víða um heim taki þann dag þátt í samræmdum aðgerðum fyrir frjálsri Palestínu. Þátttakendur mættu margir með spjöld og borða. Þórdís Reynisdóttir Ísland-Palestína segir að þrátt fyrir sögulegar hæðir stuðnings almennings við réttindi Palestínumanna hafi aðgerðarleysi stjórnmálafólks og blekking um vopnahlé gert það að verkum að hörmungarástand viðhaldist á Gaza og Vesturbakkanum án afskipta alþjóðasamfélagsins. Félagið kalli eftir aðgerðum en ekki fleiri yfirlýsingum. „Árásir og eyðilegging Ísraels einskorðast ekki við Gasa. Ofbeldi og landrán landræningja á hernumdum svæðum Palestínu eykst stöðugt. Á meðan ríkisstjórnir heimsins senda frá sér óljósar yfirlýsingar fela börn á Vesturbakkanum sig fyrir áhlaupum landræningja í hnipri á bak við rafmagnsturna. Þetta ofbeldi nýtur fulls stuðnings Ísraelsríkis. Afskiptaleysi og stuðningur vestrænna ríkja við Ísrael skapar skilyrði fyrir þjóðarmorðinu, landráninu og hernáminu í heild sinni.“ Páll Óskar var meðal ræðumanna og flutti tónlist að ræðuhöldum loknum. Þórdís Reynisdóttir Fundarstjóri var Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingkona og framkvæmdastjóri Courage International. Ræðumenn voru Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður, Montaser Dwikat frá Nablus á Vesturbakkanum og Svava Sigbertsdóttir, einkaþjálfari og stofnandi Viking Method. Páll Óskar flutti einnig tónlist í lok fundar. Þrjú ár voru í vikunni frá því að Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Um 1200 voru myrt í árás Hamas og 251 tekin höndum, af þeim komust aðeins 168 lífs af. Um 74 þúsund Palestínumenn, þar af 21 þúsund barn, hafa verið drepin í árásum Ísraela sem hófust í kjölfar árásar Hamas.
Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira