Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Mikill viðbúnaður lögreglu var við íbúðarhús sem er í verslunarkjarna við Gnoðarvog í Reykjavík um fimmleytið í dag, en þegar mest var voru minnst sex lögreglubílar á vettvangi. Þá voru að minnsta kosti tveir menn leiddir út í járnum. 9.8.2026 17:32
Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Einn var fluttur á slysadeild vegna alvarlegrar líkamsárásar í heimahúsi í Kópavogi í dag. 9.8.2026 16:43
Rósa Björk segir já Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, hyggst segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Í stefnu Vinstri grænna er því haldið fram að hagsmunum landsmanna sé best komið utan Evrópusambandsins en rúmlega áttatíu prósent kjósenda flokksins hyggjast þó segja já. Hún segist finna fyrir viðhorfsbreytingu innan flokksins. 9.8.2026 16:06
Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur hafnað að taka þátt í fimmtán punkta áætlun Bandaríkjaforseta um frið á Gasa. Friðarráð Trumps greindi frá því í síðustu viku að þegar hefði náðst samkomulag við Hamas-samtökin um afvopnun á svæðinu. 9.8.2026 15:23
Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Dyrum Kattakaffihússins, fyrsta og eina kattakaffihúss landsins, á Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað þann 23. ágúst næstkomandi fyrir fullt og allt eftir átta ára rekstur. 9.8.2026 14:35
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Hópur manna kastaði grjóti í átt að grínista og leikkonu sem var á leið sinni heim af Gleðigöngunni í gær í Vesturbæ Reykjavíkur. Atvikið hafi ekki verið í fyrsta sinn sem hún lendir í slíkri árás en bakslag í málefnum hinsegin fólks sé raunverulegt og samfélaginu beri skylda að bregðast við. 9.8.2026 14:18
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið á miðhálendinu. 9.8.2026 11:05
Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Hjón frá London skildu fimm ára son sinn eftir í bíl á bílastæði við Eldgjá í Skaftártunguafrétti á Suðurlandi í gær. Íslensk kona lýsir því að hafa fundið drenginn grátandi á bílaplaninu og róað hann. 9.8.2026 10:38
Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Þáttur dagsins er helgaður Evrópumálum en þau verða rædd frá ýmsum hliðum. 9.8.2026 09:47
Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Hápunktur hinsegin daga fór fram í dag þegar Gleðigangan var gengin í Reykjavík frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og endaði með útitónleikum í Hljómskálagarðinum. 8.8.2026 21:19